Samkvæmt tilkynningu frá Miðflokknum var húsfyllir á stofnfundi Miðflokksfélags Reykjavíkur í Rúgbrauðsgerðinni í gærkvöldi. Gestir fundarins voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður.
Miðflokksfélag Reykjavíkur er þriðja nýstofnaða kjördæmafélag Miðflokksins, en félagið mun starfa fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin. Félagið hefur skv. nýsamþykktum lögum þess þann tilgang að vinna að bættum hag íbúa Reykjavíkur og gæta hagsmuna þeirra á vettvangi lands- og sveitarstjórnarmála.
Í stjórn Miðflokksfélags Reykjavíkur voru kosin þau Reynir Þór Guðmundsson formaður, Valgerður Sveinsdóttir, Steinunn Anna Baldvinsdóttir, Sigurjón Jónsson og Kristján Hall. Varastjórn skipa Viðar Freyr Guðmundsson, Kristín Jóna Grétarsdóttir og Sólveig Daníelsdóttir.
Miðflokksfélag Reykjavíkur mun m.a. standa fyrir öflugu félagsstarfi og hafa umsjón með undirbúningi framboðs Miðflokksins til borgarstjórnar í Reykjavík fyrir kosningarnar vorið 2018.
Félagið óskar því eftir framboðum frá áhugasömum einstaklingum sem vilja láta til sín taka í borgarmálunum. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Miðflokksfélag Reykjavíkur á tölvupósti reykjavik@midflokkurinn.is eða í síma 863-4000.