fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
Eyjan

Óskað eftir gjaldþrotaskiptum á United Silicon – Útséð með nauðasamninga

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 22. janúar 2018 16:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn United Silicon hf. hefur sent beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um gjaldþrotaskipti á búi félagsins.

Stjórn United Silicon hf. hefur farið fram á gjaldþrotaskipti félagsins og beiðni hefur verið send til Héraðsdóms Reykjaness.  Útséð þykir að nauðasamningar náist og því ekki forsendur fyrir beiðni um frekari framlengingu á greiðslustöðvun.

Ákvörðunin var tekin eftir að ljóst varð að Umhverfisstofnun gerði kröfu um rekstur hæfist ekki á ný í verksmiðjunni fyrr en eftir viðamiklar framkvæmdir sem gætu tekið vel á annað ár.

Um skeið hefur verið ljóst að staða félagsins er þröng og afar erfið. Félagið fékk fyrst heimild til greiðslustöðvunar í ágúst 2017. Rekstur verksmiðju félagsins var skömmu síðar, eða þann 1. september,  stöðvaður af Um­hverf­is­stofn­un. Heimild félagsins til greiðslu­stöðvun­ar var þann 4. september framlengd til 4. des­em­ber og þann dag til dagsins í dag.

Arion banki hefur lagt félaginu til fjármagn á greiðslustöðvunartímabilinu og kostað rannsóknir og greiningar á stöðunni. Verkefni stjórnar á greiðslustöðvunartímabilinu var að reyna að ná nauðasamningum og fá nýja fjárfesta að félaginu. Forsenda þess var að fá betri upplýsingar um stöðu félagsins. Þær úttektir sem unnar voru leiddu meðal annars í ljós mikla óreiðu og upp kom rökstuddur grunur um fjárdrátt stofnanda félagsins. Hann hefur verið kærður til embættis héraðssaksóknara. Einnig voru framkvæmdar ítarlega úttektir á búnaði verksmiðjunnar. Í skýrslu út­tekt­araðila kom fram að grunn­hönn­un ofns­ins sjálfs væri góð en aug­ljóst sé að ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi orsakað tíðar bilanir og skapað erfiðleika við fram­leiðsluna. Mat sér­fræðing­anna sýn­di að um 25 millj­ón­ir evra þyrfti til að verk­smiðjan teldist full­kláruð.

Þegar félög fara í gjaldþrot þá tekur við ferli sem er í höndum skiptastjóra sem skipaður er af héraðsdómara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Björn Leví skrifar: Vókið mikla

Björn Leví skrifar: Vókið mikla
Eyjan
Í gær

Stjórn Heimssýnar skrifar: Evrópusambandssinna svarað

Stjórn Heimssýnar skrifar: Evrópusambandssinna svarað
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Bolli og skrímsladeildin á bak við rógsherferðina gegn Degi?

Orðið á götunni: Bolli og skrímsladeildin á bak við rógsherferðina gegn Degi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðlaugur gerir grín að því hvað Miðflokksmenn séu gleymnir – Sigmundur gagnrýni nú í raun sín eigin verk

Guðlaugur gerir grín að því hvað Miðflokksmenn séu gleymnir – Sigmundur gagnrýni nú í raun sín eigin verk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið