Í gærmorgun samþykkti fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík að valið yrði á framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar með flokksvali þann 10. febrúar næstkomandi.
Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi stefnir á 2. sætið, en borgarfulltrúarnir Skúli Helgason og Hjálmar Sveinsson stefna báðir á 3. sætið.
Borgarfulltrúinn Kristín Soffía Jónsdóttir hefur ekki gert upp hug sinn um hvort hún bjóði sig fram, samkvæmt heimildum Eyjunnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun því leiða listann.