Hörður Felixson var í hópi hetja æskuára minna í Vesturbænum. Ég man reyndar ekki glöggt eftir honum að spila á fótboltavelli, þetta var á árunum þegar maður var að þvælast á Melavellinum, kom sér oft þangað inn með því að skríða undir grindverkið, og kannski sá ekki leikina svo nákvæmlega. Maður var eilitið of ungur til þess. En nærvera Harðar var alltaf sterk í KR. Ég gantaðist einhvern tíma með það við hann að varla væri að finna ljósmynd í KR-húsinu án þess að hann væri á henni, alveg frá því hann var í yngri flokkum og upp í meistaraflokk og tíma gullaldarliðsins. Svo átti Hörður tvo yngri bræður sem voru líka í þessum fræknu liðum – þegar KR-ingar voru meistarar ár eftir ár – þá Bjarna Fel og Gunna Fel. Það er meira að segja til þessi úrklippa af þeim bræðrum saman í landsliðsbúningi. Þá var það einstakt í knattspyrnusögunni að þrír bræður spiluðu saman í landsliði.
Ég fékk ungur brennandi áhuga á íþróttum, sérstaklega fótbolta. Var ekki nema sex ára þegar ég fór að klippa út íþróttafréttir úr blöðunum, einkum ef þær fjölluðu um KR, og líma í stílabók. Þar er að finna leikmennina á myndinni hér efst á síðunni. Þetta er að loknu Íslandsmóti þar sem KR sigraði, bikarinn stendur í grasinu. Þarna er Hörður í efri röð, hávaxinn, annar frá hægri. Svo eru Svenni Jóns, Bjarni, Kiddi Jóns, Heimir Guðjóns og Ellert og fleiri. Mörgum af þessum körlum kynntist ég síðar á KR-vellinum, í áhorfendastúkunni. Ég heyrði sögurnar þeirra, sumar oftar en einu sinni og tvisvar – þeir höfðu alveg innistæðu fyrir því að grobba smá.
Hörður var alltaf sérlega hlýr og alúðlegur, gamansamur og glettinn. Það þótti öllum vænt um hann og báru virðingu fyrir honum. En hann sagði mér að hann ætti stundum erfitt með að horfa þegar KR var að spila. Þannig hefur það reyndar verið um okkur fleiri sem fylgja þessu félagi að málum. Við höfum upplifað bæði skin og skúrir. Hörður sagðist eiga það til að snúa bakinu í leikinn þegar spennan yrði óbærileg.
Hörður Felixson var fæddur 1931 og ég les um lát hans í fjölmiðlum í dag. Mér skilst að leikmenn KR verði með sorgarbönd í leiknum gegn FH á morgun.