Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, leik- og söngkona, hyggst bjóða sig fram til embættis formanns Ungra vinstri grænna, á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fer 1.-2. september næstkomandi í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu:
„Ég er 29 ára gömul, alin upp í Mosfellsdal, var búsett í Bretlandi í 6 ár og hef síðan búið í Reykjavík. Ég er leik- og söngkona að mennt og hef starfað á þeim vettvangi sem og við kennslu barna og unglinga í þeim greinum. Auk þess hef ég starfað sem flugfreyja hjá Icelandair á sumrin.
Ég hef verið virkur meðlimur í VG undanfarin tvö ár, sit í flokksráði og stjórn Reykjavíkurfélagsins auk þess að hafa skipað 4. sæti á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.“