Samþykkt var á lokuðum fundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar í gær að fela bæjarráði að ganga til samninga við Fannar Jónasson, núverandi bæjarstjóra, um endurnýjun á samningi hans við bæinn til næstu fjögurra ára.
Fannar hefur verið bæjarstjóri Grindavíkurbæjar frá janúar 2017.
Alls bárust 20 umsóknir um stöðu bæjarstjóra Grindavíkurbæjar, en umsóknarfrestur um starfið var til 11. júlí. Úrvinnsla umsókna fór fram í samvinnu við ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki Hagvang.
Umsækjendur í stafrófsröð:
Anna Greta Ólafsdóttir – Stofnandi og sérfræðingur stjórnendalausna
Ármann Jóhannesson – Ráðgjafi
Áróra Jóhannsdóttir – Eigandi / sölumaður
Baldur Þ. Guðmundsson – Útibússtjóri
Bjarni Óskar Halldórsson – Framkvæmdastjóri
Björn Ingi Jónsson – Bæjarstjóri
Fannar Jónasson – Bæjarstjóri
Guðrún Pálsdóttir – Verkefnastjóri
Gunnar Bjornsson – Forseti í fullu starfi / verkefnastjóri
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir – Nefndarmaður
Matthias Magnusson – Framkvæmdastjóri
Ólafur Örn Ólafsson – Fv. bæjarstjóri
Ómar Smári Ármannsson – Aðstoðaryfirlögregluþjónn
Rebekka Hilmarsdóttir – Lögfræðingur/Staðgengill skrifstofustjóra
Regina Fanny Gudmundsdóttir – Deildarstjóri reikningshalds
Sveinbjörn Freyr Arnaldsson – Framkvæmdastjóri
Valdimar Leó Friðriksson – Framkvæmdastjóri
Þórður Valdimarsson – Verkefnastjóri
Þorsteinn Gunnarsson – Sveitarstjóri
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir – Framkvæmdastjóri íþróttasviðs