fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Eyjan

Rúnar Gunnarsson oddviti Miðflokksins í Fjarðabyggð

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 9. apríl 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúnar Gunnarsson

Miðflokksfélag Fjarðabyggðar var formlega stofnað á fundi í safnaðarheimilinu á Reyðarfirði laugardaginn 7. april. s.l.

 Á fundinum var samþykkt að Miðflokkurinn muni bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga í Fjarðabyggð þann 26. maí næstkomandi og mun Rúnar Gunnarsson leiða listann.

Rúnar er fæddur og uppalinn á Norðfirði og býr þar ásamt eiginkonu sinni Aldísi Stefánsdóttur, en þau eiga 4 börn og 6 barnabörn.

 Rúnar hefur áratuga reynslu af rekstri, en hann keypti fyrirtæki í flutningaþjónustu árið 1979 og byggði það upp þar til hann seldi Eimskip það árið 1999. Hann hefur rekið flutningaþjónustu Eimskips á Austurlandi síðan.

Rúnar leggur mikla áherslu á að vinna að betri sameiningu fólksins í Fjarðabyggð til að styrkja samfélagið í heild, og að rýna í fjármál og starfsmannamál sveitarfélagsins með það í huga að auka nýtni fjármagnins gagnvart núverandi íbúum.

Miðflokksfélags Fjarðabyggðar ásamt þingmönnum og oddvita flokksins í Fjarðabyggð. Frá vinstri: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Þorgrímsson, Lára Eiríksdóttir, Rúnar Gunnarsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Árni Björn Guðmundsson.

Aðrar helstu málefnaáherslur Miðflokksins í Fjarðabyggð verða kynntar sérstaklega þegar nær dregur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

María Rut Kristinsdóttir: Á óttaslóðum

María Rut Kristinsdóttir: Á óttaslóðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?