Geir Þorsteinsson, fyrrum framkvæmdarstjóri og formaður KSÍ, mun leiða lista Miðflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum.
„Miðflokkurinn í Kópavogi býður í fyrsta skipti fram í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar verða 26. maí nk. Markmiðið er að ná fram betri árangri fyrir alla íbúa Kópavogsbæjar.
Geir Þorsteinsson leiðir framboð Miðflokksins í Kópavogi, en hann hefur áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála. Geir hefur m.a. starfað að fjölbreyttum verkefnum innan knattspyrnuhreyfingarinnar frá 1981 og í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) frá 1992, sem framkvæmdastjóri KSÍ 1997-2007 og formaður KSÍ 2007-2017. Hann hefur setið í nefndum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu UEFA frá 1998 og Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA frá 2007 og sinnir nú sérstökum verkefnum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu.
Geir segir að eitt stærsta verkefnið á kjörtímabilinu verði að lækka álögur á bæjarbúa og bæta þjónustu bæjarins við íbúana.
„Við viljum ná betri árangri í fjármálum Kópavogsbæjar þannig að lækka megi útsvarið úr 14,48% í 14% á kjörtímabilinu“ segir Geir. „Við leggjum áherslu á að í menntamálum standi nemendum til boða kennsla eins og best gerist ásamt því að vinna að stofnun framhaldsskóla í efri byggðum bæjarins og að bæjarbúar á öllum aldri fái notið fjölbreyttra menningar- og listviðburða og líflegs íþróttalífs í bænum, sér til skemmtunar og heilsubótar.“
Miðflokkurinn mun kynna ítarlega stefnu sína og framboðslista á næstunni.“