fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Öryrkjabandalagið: Þarf að draga úr vinnuálagi

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. apríl 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd-ÖBÍ

Píratar hafa lagt fram frumvarp á Alþingi, sem kveður á um styttingu vinnuvikunar. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) lýsir stuðningi við frumvarpið sem kveður á um að dagvinnutími verði styttur í 35 stundir á viku. Þetta kemur fram í umsögn bandalagsins sem send hefur verið Alþingi. Lögð er áhersla á að breyting af þessu tagi verði ekki til þess að skerða kjör. Þá er á það bent að ekki aðeins mun stytting vinnuvikunnar auka lífsgæði fólks heldur er jafnframt mikilvægur þáttur í að fyrirbyggja örorku.

Í umsögninni er meðal annars bent á að önnur ríki á Norðurlöndum, Svíþjóð, Danmörk og Noregur, hafi fyrir nokkru innleitt 35 stunda viku. Þessar þjóðir eru ofar en við Íslendingar á lista yfir jafnvægi milli vinnu og frítíma. Þá er framleiðni meiri í þessum löndum en hér.

Lág laun á vinnumarkaði  hér á landi valda því að launafólk vinnur óhóflega langan dag og/eða þarf að vinna aukavinnu til þess eins að ná endum saman. Þetta eykur álag á fólk til muna. ÖBÍ tekur fram að mjög mikilvægt sé að kjör skerðist ekki við styttingu vinnuvikunnar, en í greinargerð flutningsmanna með frumvarpinu er tekið fram að það sé ekki markmið breytingarinnar að skerða kjör.

Bætir lífsgæði

Langur vinnudagur leiðir til ójafnvægis á milli vinnu og frítíma á kostnað lífsgæða fólks. Álag við samræmingu atvinnulífs og einkalífs er mikið hér á landi eins of fram kemur í rannsókn Kolbeins H. Stefánsson frá árinu 2008. Stytting vinnuvikunnar myndi gera foreldrum betur kleift að koma á jafnvægi milli atvinnu- og fjölskyldulífs, hafa betri tíma fyrir samveru með börnum sínum og og veita þeim þá athygli og stuðning sem þau þurfa.

Fyrirbyggjandi aðgerð

Álag á vinnumarkaði á því stóran þátt í því að fólk verður óvinnufært.  Örorka er „að langstærstum hluta sköpuð af samfélagslegum aðstæðum, svo sem álagi og streitu. Þetta felur í sér að fyrirbyggjandi aðgerðir og aukið starf að bættri lýðheilsu gæti dregið úr örorku í samfélaginu,“ segir í rannsókninni.

Stytting vinnuvikunnar getur verið fyrirbyggjandi aðgerð og gert fólki betur kleift að ná nauðsynlegri hvíld og ná jafnvægi á milli atvinnu og einkalífs. Þó er ekki nóg einvörðungu að stytta vinnutímann, einnig þarf að draga út vinnuálagi.

Slitnar af vinnuálagi

Algengustu ástæður örorku eru geðraskanir (38%) og stoðkerfissjúkdómar 29%. Geðraskanir sem orsök örorku eru algengari hjá körlum en stoðkerfisvandamál hjá konum.

Afar fáir örorkulífeyrisþegar hafa meðfæddar skerðingar (aðeins um 2%). Í rannsókn sem unnin var af Rannsóknasetri í fötlunarfræði við HÍ kemur fram að langflestir örorkulífeyrisþegar eru fólk sem komið er yfir miðjan aldur og  er slitið eða óvinnufært af álagi, sjúkdómum eða slysum. Örorkulífeyrisþegum fjölgar eftir miðjan aldur, ekki síst vegna stoðkerfissjúkdóma og þar eru konur í miklum meirihluta, sem eru líkamlega slitnar af vinnuálagi.

Efla þarf rannsóknir

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2012 er bent á að hér á landi hafi ekki verið gerðar ítarlegar rannsóknir á því hvaða vinnuþættir eru líklegir til að leiða af sér örorku. „Þó hafa verið leiddar að því líkur að líkamlega erfið og einsleit vinna, langur vinnutími og lág laun geti verið fyrirboðar örorku. Þetta kemur heim og saman við það mat starfsmanna Tryggingastofnunar að erfiðar vinnuaðstæður séu algeng ástæða örorku, t.d. eldri kvenna með stoðkerfisvandamál.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur