Samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir Morgunblaðið um fylgi framboða fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, er Samfylkingin stærsti flokkur landsins.
Samfylkingin mælist með 31,7 prósent fylgi sem gerir átta borgarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar næstur á eftir með 27 prósent og sjö fulltrúa, en Vinstri grænir fá 12.8 prósent og þrjá fulltrúa.
Píratar mælast með 7.7 % og tvo fulltrúa, Viðreisn 7.3% og tvo fulltrúa, Miðflokkurinn fær 5% og einn fulltrúa.
Flokkur fólksins fær 3.1% og engan fulltrúa og Framsókn fær 2.7% og engan fulltrúa.
Fylgi við tvo stærstu flokkanna er nokkuð hverfaskipt, Samfylking fær meiri stuðning í vesturhluta borgarinnar, meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir fylgi sitt mest til úthverfa.
„Sjálfstæðisflokkurinn vill hverfa aftur til gamla tímans og hefur kynnt hugmyndir um þróun borgarinnar sem fólk áttar sig betur og betur á að verði vondar fyrir umferðina, þá sérstaklega þessar stóru stofnbrautir,“
segir Dagur B. Eggertsson í Morgunblaðinu.
Eyþór Arnalds segir fólk vilja breytingar:
„Ég skynja það að þeir sem segjast styðja meirihlutaflokkana eru ekki sérstaklega stoltir af verkum
þeirra. Ég tel að það muni skipta máli. Fólk velji breytingar, þegar upp er staðið.“