fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Landsmönnum fjölgað um 10.000 á einu ári

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 28. mars 2018 14:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Hinn 1. janúar 2018 voru landsmenn 348.450 og hafði þá fjölgað um 10.101 frá sama tíma árið áður eða um 3%. Konum (170.850) fjölgaði um 2,1% og körlum (177.600) fjölgaði um 3,8%. Talsverð fólksfjölgun var á höfuðborgarsvæðinu en íbúum þar fjölgaði um 5.606 í fyrra eða 2,6%. Hlutfallslega varð þó mest fólksfjölgun á Suðurnesjum, 7,4%. Einnig fjölgaði íbúum á Suðurlandi (4,6%), Norðurlandi eystra (2,6%), Austurlandi (2,4%) og Vesturlandi (2%), en minna á Vestfjörðum (1,8%) og Norðurlandi vestra (0,5%).

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Níu sveitarfélög með yfir 5 þúsund íbúa
Alls voru 74 sveitarfélög á landinu 1. janúar 2018, en það er óbreyttur fjöldi frá fyrra ári. Sveitarfélögin eru misstór. Alls var íbúatala sjö sveitarfélaga undir 100 en undir 1.000 í 40 sveitarfélögum. Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir 5.000 íbúa.

Í þéttbýli bjuggu 330.559
Hinn 1. janúar síðastliðinn var 61 þéttbýlisstaður á landinu með 200 íbúa eða fleiri og fjölgaði um einn milli ára. Auk þeirra voru 37 smærri staðir með 50–199 íbúa sem er fjölgun um einn frá fyrra ári. Í þéttbýli bjuggu 330.559 og fjölgaði um 13.655 milli ára. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 22.048 manns hinn 1. janúar síðastliðinn.

Fjölskyldur
Kjarnafjölskyldur voru 82.102 hinn 1. janúar síðastliðinn en 80.638 ári áður. Sjá má skiptingu kjarnafjölskyldna eftir fjölskyldugerð á meðfylgjandi mynd.

Framfærsluhlutfall
Framfærsluhlutfall var 65,8% í ársbyrjun en 67,4% í fyrra. Framfærsluhlutfall er hlutfall ungs fólks (19 ára og yngra) og eldra fólks (65 ára og eldra) af fólki á vinnualdri (20–64 ára). Hækkun þessa hlutfalls stafar einkum af því að fólki á vinnualdri fækkar hlutfallslega.

Aðferðir
Þéttbýlisstaðir eru skilgreindir óháð byggðakjörnum og þar með sveitarfélagsmörkum. Miðað er við að þéttbýlisstaðurinn hafi skýrt gatnakerfi, sérstakt heiti eða að fjarlægð milli húsa sé ekki meiri en 200 metrar. Lögð hefur verið af sú regla að allt sveitarfélagið, ef um er að ræða kaupstaði eða kauptúnahreppa, teljist til þéttbýlis, enda er langt um liðið frá því skipting landsins í kaupstaði, kauptún og sveit endurspeglaði raunverulegt þéttbýli. Þá er lögð af sú regla að meira en tveir þriðju íbúa í þéttbýli skyldu hafa atvinnu af öðru en landbúnaði. Þéttbýlisstaðir hafa að lágmarki 200 íbúa. Aðeins íbúar þéttbýlisstaða teljast til þéttbýlis.

Byggðakjarnar eru skilgreindir með sama hætti og þéttbýlisstaðir, nema að því leyti að þeir ná ekki yfir sveitarfélagsmörk og ekki eru sett nein skilyrði um lágmarks mannfjölda. Hagstofan birtir tölur um byggðakjarna nái mannfjöldi í þeim 50 á því tímabili sem birt er.

Til kjarnafjölskyldu teljast hjón og fólk í óvígðri sambúð, börn hjá þeim 17 ára og yngri, einhleypir karlar og konur sem búa með börnum 17 ára og yngri.

Talnaefni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur