fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Eyjan

Yfirlýsing Barnaverndarnefndar Reykjavíkur vegna umfjöllunar Kveiks

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. mars 2018 21:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ráðhús Reykjavíkur

Vegna umfjöllunar Kveiks um málefni barnaverndar í kvöld vill Barnaverndarnefnd Reykjavíkur ítreka að allar ábendingar eru teknar alvarlega og hagsmunir barna eru í öllum tilfellum settir í öndvegi við meðferð mála. Nefndin getur ekki tjáð sig efnislega um það mál sem fjallað var um í þættinum. Barnaverndarnefndum er samkvæmt barnaverndarlögum óheimilt að taka þátt í opinberri umræðu um mál sem eru til meðferðar eða hafa verið til meðferðar hjá nefndunum. Þetta er vegna þeirra ríku trúnaðarskyldu sem óhjákvæmilega fylgja slíkum málum og geta varðað börnin sjálf, foreldra þeirra og skyldmenni eða fósturforeldra. Í athugasemdum með frumvarpinu sem varð að núgildandi barnaverndarlögum er sérstaklega tekið fram að barnaverndarnefndum sé skylt að gæta fyllsta trúnaðar um upplýsingar sem nefndirnar búa yfir varðandi aðila máls gagnvart utanaðkomandi sem ekki eru aðilar barnaverndarmáls. Trúnaðarskylda barnaverndaryfirvalda er forsenda þess að unnt sé að veita fullnægjandi þjónustu og þess að einstaklingar muni yfirhöfuð leita sér aðstoðar og segja frá viðkvæmum málum.

Fjöldi virkra mála hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur á síðastliðnum 3 árum var 5683. Á því tímabili hefur Barnaverndarstofa í 11 tilfellum gert athugasemdir við málsmeðferð eða í 0,19% tilfella. Allar slíkar athugasemdir eru teknar alvarlega og þær eru mikilvæg leið til að efla málsmeðferð og verklag hjá Barnavernd Reykjavíkur. Margar góðar ábendingar hafa komið fram sem starfsmenn barnaverndar hafa í kjölfarið tileinkað sér við meðferð mála. Rétt er að árétta, vegna ummæla í fyrrnefndum sjónvarpsþætti, að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur aldrei borist formlegt skriflegt erindi um að til standi að áminna nefndina. Skilyrði áminningar samkvæmt barnaverndarlögum eru að ekki sé farið að ábendingum og leiðbeiningum Barnaverndarstofu. Það á ekki við en Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur þvert á móti farið eftir öllum ábendingum og leiðbeiningum sem henni hafa borist frá Barnaverndarstofu. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur á undanförnum árum sent regluleg bréf til Barnaverndarstofu þar sem því er lýst hvernig brugðist hefur verið við tilmælum hennar. Engar athugasemdir hafa verið gerðar við þau bréf.

Rétt er að nefna að einn mælikvarði á gæði starfa barnaverndarnefndar eru niðurstöður dómstóla sem hafa lokaorðið í ágreiningsmálum. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur unnið eða gert dómsáttir, þar sem kröfur nefndarinnar hafa náð fram að ganga, í 46 af 48 málum frá því í nóvember 2015, eða í 96% tilfella.

Barnaverndarnefndum er sem áður segir óheimilt að taka þátt í umræðu um mál líkt og það sem var til meðferðar í fyrrnefndum sjónvarpsþætti, til dæmis að leiðrétta rangfærslur sem kunna að koma fram, leggja fram gögn sem varpað gætu frekara ljósi á málavexti eða ræða núverandi stöðu þeirra barna sem fjallað var um.

Vegna hinnar ríku trúnaðarskyldu þá fer umræða og úrlausn ágreinings vegna barnaverndarmála fram fyrir Barnaverndarstofu, úrskurðarnefnd velferðarmála og loks hjá dómstólum. Sú umræða sem fram fer um barnaverndarmál í fjölmiðlum getur því ekki varpað nema takmörkuðu ljósi á málsatvik.

Virðingarfyllst,

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur

Tómas Hrafn Sveinsson

Guðrún Ögmundsdóttir

Andri Óttarsson

Sólveig Ásgrímsdóttir

Kolbrún Baldursdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð vísar frétt Vísis á bug – „Það er stuð á Akureyri!“

Sigmundur Davíð vísar frétt Vísis á bug – „Það er stuð á Akureyri!“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð um slaufun Þórðar Snæs – „Þeir sem eru fyrstir til að kasta steinunum það eru yfirleitt ekki þeir syndlausu“

Sigmundur Davíð um slaufun Þórðar Snæs – „Þeir sem eru fyrstir til að kasta steinunum það eru yfirleitt ekki þeir syndlausu“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Samfylkingin slaufaði Þórði – hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn við Jón Gunnarsson?

Orðið á götunni: Samfylkingin slaufaði Þórði – hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn við Jón Gunnarsson?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Eldri kírópraktorstöð Gumma Kíró úrskurðuð gjaldþrota

Eldri kírópraktorstöð Gumma Kíró úrskurðuð gjaldþrota