fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Þorsteinn krefur Bjarna svara um laun Kjararáðs

Ritstjórn DV
Mánudaginn 26. mars 2018 13:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Víglundsson

Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Viðreisnar, hefur lagt fram fyrirspurn þess efnis til fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar, hver kostnaður við rekstur kjararáðs sé. Spyr hann um árlegan kostnað frá 2014-2017, greiðslur til hvers og eins í nefndinni, sundurliðað á hvern ráðsmann eftir árum, hvernig þóknun þeirra sé ákveðin, hver sé aðkoma ráðuneytisins um launin, og hver launakostnaður kjararáðs sé, utan þóknunar til kjararáðsmanna og hvaða stöðugildi séu þar að baki.

Fréttablaðið hefur einnig sóst eftir þessum upplýsingum, en ekki fengið.

Starfshópur sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði, komst að þeirri niðurstöðu að leggja ætti niður kjararáð, þar sem ákvarðanir þess um kjör æðstu stjórnenda ríkisins hafi farið langt fram úr viðmiðunum rammasamkomulags aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda frá 2015.

Þá sóttist kjararáð eftir því að hækka eigin laun afturvirkt, með vísun í hækkun á launavísitölu Hagstofunnar. Sú hækkun vísitölunnar mátti, meðal annars, rekja til ákvarðana kjararáðs sjálfs, líkt og Kjarninn greindi frá.

Þáverandi fjármálaráðherra, Benedikt Jóhannesson, fór að skellihlæja yfir bón kjararáðs um þessa launahækkun, en Bjarni Benediktsson, sem fékk bréfið í arf frá Benedikt frænda sínum, samþykkti launahækkunina, sem taka átti gildi frá 1. ágúst 2017.

Fimm manns skipa kjararáð auk fimm varamanna, sem skipaðir eru í fjögur ár í senn. Í ráðinu sitja Jónas Þór Guð­munds­son, for­maður kos­inn af Alþingi, Óskar Bergs­son, vara­for­maður, kos­inn af Alþingi, Svan­hildur Kaaber, kosin af Alþingi, Jakob R. Möller, skip­aður af Hæsta­rétti, og Hulda Árna­dótt­ir, skipuð af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur