Mynd-Ríkisendurskoðun

Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til velferðarráðuneytis og Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá árunum 2009, 2012 og 2015 sem sneru að eftirliti með fjárreiðum og rekstri stofnunarinnar. Uppsafnaður halli stofnunarinnar var jafnaður út með lokafjárlögum 2015 og stjórnendur hennar hafa sýnt aukið aðhald í rekstri. Síðustu ár hefur rekstur stofnunarinnar verið í járnum en að jafnaði í samræmi við fjárveitingar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þrátt fyrir að fjárhagur Heilbrigðisstofnunar Austurlands sé í jafnvægi er ljóst að stofnuninni er þröngur stakkur skorinn. Ekki er víst hvort aðhaldsaðgerðir síðustu ára muni skila áframhaldandi árangri, m.a. ef nauðsynlegum fjárfestingum hefur verið slegið á frest. Ríkisendurskoðun brýnir því fyrir velferðarráðuneyti mikilvægi þess að rekstrargrundvöllur Heilbrigðisstofnunar Austurlands sé í samræmi við verkefni hennar. Sé fjármögnun fyrir verkefnum hennar ekki tryggð þarf ráðuneytið að koma að því að taka erfiðar ákvarðanir um þjónustu og forgangsröðun stofnunarinnar.