Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu og landbúnað, var 737 milljarðar króna í nóvember og desember 2017 sem er 9,2% hækkun miðað við sama tímabil árið 2016. Virðisaukaskattskyld velta í þessum greinum var 4.145 milljarðar árið 2017 eða 4,2% hærri en 2016. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Tafla 1: Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna) | ||||||
Nóv.-des. 2016 | Nóv.-des. 2017 | Breyting, % | 2016 | 2017 | Breyting, % | |
Alls, án lyfjaframleiðslu, landbúnaðar og skógræktar¹ | 675 | 737 | 8,4 | 3.979 | 4.145 | 4,2 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 49 | 54 | 11,2 | 348 | 318 | -8,6 |
C-24 Framleiðsla málma | 32 | 38 | 18,7 | 198 | 222 | 12,1 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 71 | 80 | 12,9 | 392 | 413 | 5,3 |
D/E Veitustarfsemi | 30 | 31 | 5,0 | 162 | 170 | 4,5 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 57 | 62 | 8,6 | 281 | 323 | 14,8 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 23 | 28 | 18,0 | 161 | 174 | 8,4 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 30 | 32 | 6,9 | 227 | 193 | -15,0 |
G-4671 Olíuverslun | 16 | 19 | 14,6 | 110 | 124 | 12,4 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 63 | 63 | -0,1 | 341 | 344 | 0,8 |
G-47 Smásala | 82 | 88 | 7,3 | 428 | 453 | 6,0 |
H Flutningar og geymsla | 61 | 70 | 16,2 | 429 | 454 | 5,9 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 27 | 27 | 1,7 | 173 | 189 | 9,5 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 36 | 39 | 7,3 | 195 | 197 | 1,4 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 7 | 8 | 17,2 | 45 | 51 | 12,5 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 13 | 14 | 3,1 | 97 | 108 | 11,5 |
Erlendir aðilar sem selja rafræna þjónustu | 1 | 2 | 19,2 | 4 | 7 | 93,2 |
Aðrar atvinnugreinar | 76 | 82 | 7,6 | 387 | 404 | 4,4 |
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Því eru ekki komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt seinni hluta árs 2017. |
Velta eftir virðisaukaskattsþrepum
Hærra þrep virðisaukaskatts, eða almennt þrep, er í dag 24%. Í þessu þrepi eru allar tegundir vöru og þjónustu sem ekki eru flokkaðar í öðrum þrepum samkvæmt lögum um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
Lægra þrep virðisaukaskatts er í dag 11% skv. 14. grein laga um virðisaukaskatt. Í þessu þrepi eru m.a. bækur, tímarit, hitaveita, rafmagn til húshitunar, matvara, þjónusta veitingahúsa, gistiþjónusta, farþegaflutningar innanlands (aðrir en áætlunarflutningar) og þjónusta ferðaskrifstofa. Áfengi er í lægra þrepi síðan 1. janúar 2016 en var áður í hærra þrepi.
Velta undanskilin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt: Ekki þarf að greiða virðisaukaskatt af þessari veltu, en þó er skylt að skila virðisaukaskattskýrslum og hægt er að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hefur verið greiddur til að afla tekna. Útflutningur á vöru og þjónustu er undanskilinn virðisaukaskatti. Sem dæmi um útflutta þjónustu má nefna millilandaflug og -siglingar; útflutning hugbúnaðarþjónustu; og utanlandsferðir sem íslenskar ferðaskrifstofur selja. Samningsbundnar greiðslur úr ríkissjóði vegna mjólkurframleiðslu og sauðfjárframleiðslu eru einnig undanskildar virðisaukaskatti.
Þjónusta undanskilin virðisaukaskatti: Ýmiss konar þjónusta er að öllu leyti undanskilin virðisaukaskatti skv. 2. grein laga um virðisaukaskatt. Veltu í þess konar þjónustu á ekki að telja með í virðisaukaskattskýrslum og ekki er hægt að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem rekstraraðilar hafa greitt í tengslum við þessa þjónustu. Eðli máls samkvæmt er þjónusta af þessu tagi ekki talin með í hagtölum um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum. Sem dæmi um þjónustu sem er undanþegin virðisaukaskatti má nefna almenningssamgöngur, aðra áætlunarflutninga innanlands, læknisþjónustu, íþróttastarfsemi, happdrætti og fasteignasölu.
Frekari upplýsingar um virðisaukaskatt má finna á heimasíðu Ríkisskattstjóra.
Tafla 2: Velta skv. virðisaukaskattskýrslum árið 2017, eftir virðisaukaskattþrepum (milljarðar króna) | ||||
Velta undanþegin vsk | Lægra vsk-þrep | Hærra vsk-þrep | Alls | |
Alls, án lyfjaframleiðslu landbúnaðar og skógrækt¹ | 1.233 (30%) | 895 (22%) | 2.017 (49%) | 4.145 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 215 (67%) | 89 (28%) | 15 (5%) | 318 |
C-24 Framleiðsla málma | 221 (99%) | 0 (0%) | 1 (1%) | 222 |
C Framleiðsla, án fiskvinnslu (C-102), lyfjaframleiðslu (C-21) og framleiðslu málma (C-24) | 101 (25%) | 136 (33%) | 176 (43%) | 413 |
D/E Veitustarfsemi | 7 (4%) | 25 (15%) | 138 (81%) | 170 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 5 (1%) | 1 (0%) | 317 (98%) | 323 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 8 (5%) | 0 (0%) | 166 (95%) | 174 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 145 (75%) | 39 (20%) | 9 (5%) | 193 |
G-4671 Olíuverslun | 29 (24%) | 6 (5%) | 88 (71%) | 124 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 28 (8%) | 89 (26%) | 227 (66%) | 344 |
G-47 Smásala | 20 (4%) | 190 (42%) | 244 (54%) | 453 |
H Flutningar og geymsla | 353 (78%) | 25 (5%) | 77 (17%) | 454 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 5 (3%) | 177 (93%) | 7 (4%) | 189 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 41 (21%) | 16 (8%) | 141 (71%) | 197 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 1 (2%) | 0 (1%) | 50 (98%) | 51 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 15 (14%) | 86 (80%) | 7 (6%) | 108 |
Erlend fyrirtæki í rafrænni þjónustu | 0 (0%) | 1 (13%) | 6 (86%) | 7 |
Aðrar atvinnugreinar | 41 (10%) | 15 (4%) | 348 (86%) | 404 |
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Því eru ekki komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt seinni hluta árs 2017. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar í janúar var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, í september og október 2017 talin vera 737,7 milljarðar sem var 8,3% hækkun frá sömu mánuðum árið 2016. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, á þessu tímabili er talin vera 738,7 milljarðar sem er 8,4% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum og tölulegar upplýsingar um breytingar á þegar birtum hagtölum eru í endurskoðun hagtalna.
Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar