Framsýn, stéttarfélag hefur ritað stjórn Landsvirkjunar bréf með áherslu á hækkun launa til starfsmanna á gólfinu. Laun forstjóra Landsvirkjunar hækkuðu um 45% á síðasta ári og hjá framkvæmdarstjórum og aðstoðarforstjóra um 24 prósent.
„Það er von Framsýnar, stéttarfélags að sá velvilji stjórnar Landsvirkjunar til að hækka eigin laun og laun lykilstjórnenda fyrirtækisins verði til þess hún bregðist vel við beiðni stéttarfélagsins um að almennir starfsmenn innan Landsvirkjunar fái einnig notið hluta þess mikla hagnaðar sem fyrirtækið skilaði á síðasta ári, ekki bara stjórnendur,“ segir í tilkynningu.
Sjá bréfið til Landsvirkjunar:
Landsvirkjun
Hr. Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
103 Reykjavík
Húsavík 12. mars 2018
Beiðni um endurskoðun á kjörum starfsmanna
Fram hefur komið í fjölmiðlum að staða Landsvirkunnar sé með miklum ágætum og fyrirtækið hafi hagnast um 11,2 milljarða króna á síðasta ári, en það er töluvert meiri hagnaður en árið áður þegar hann nam 6,7 milljörðum króna. Selt magn nam 14,3 teravattstundum, sem er yfir 5% aukning frá fyrra ári.
Í tilkynningu um ársuppgjörið er haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra að rekstur hafi gengið vel á árinu 2017. Tekjur hafi verið meiri en nokkru sinni fyrr og slegin hafi verið öll met í orkusölu- og vinnslu. Þá hafi ytri aðstæður verið hagstæðar þar sem álverð hafi hækkað um 23% á milli ára.
Að sjálfsögðu ber að fagna þessu að mati Framsýnar, stéttarfélags. Það verður hins vegar ekki gert með því að færa lykilstjórnendum fyrirtækisins fáheyrðar launahækkanir meðan aðrir starfsmenn fyrirtækisins, það er starfsmennirnir á gólfinu, sitja eftir á strípuðum töxtum samkvæmt kaupskrá Starfsgreinasambands Íslands og Landsvirkjunar.
Svo vitnað sé áfram í fjölmiðla þá hækkuðu laun forstjóra Landsvirkjunar um 700 þúsund krónur á mánuði á ársgrundvelli og eru nú 2,7 milljónir króna. Laun stjórnarmanna í Landsvirkjun hækkuðu um tæp 50 prósent. Samanlagt deildu fimm stjórnarmenn með sér 525 þúsund krónum til viðbótar á mánuði. Þetta var ákveðið af starfskjaranefnd Landsvirkjunar, sem í sitja þrír stjórnarmannanna.
Með bréfi þessu óskar Framsýn, stéttarfélag eftir viðræðum við Landsvirkjun um leiðréttingu á kjörum félagsmanna sem starfa við virkjanir fyrirtækisins á félagssvæði Framsýnar, það er við Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun og Laxárvirkjun.
Í viðræðum við Landsvirkjun hefur Framsýn komið að því innan Starfsgreinasambands Íslands að jafna kjör kynjanna innan fyrirtækisins. Að mati félagsins ætti næsta skref í jöfnun kjara innan Landsvirkjunar að vera að ofurhækkanir til lykilstjórnenda flæði jafnframt til annarra starfsmanna. Höfum í huga að hagnaður fyrirtækja verður ekki til í excel skjali, mann-auðurinn er lykillinn að góðum rekstri, sem ber að virða.
Framsýn er fullkunnugt um að stjórnarformaður Landsvirkjunar er jafnframt formaður Kjararáðs, sem hefur hækkað laun æðstu embættismanna langt umfram það sem gengur og gerist á almennum vinnumarkaði undanfarin misseri. Embættismanna, sem fullir af gleði rúnta þessa dagana um borg og bæ á kostnað ríkisins, þ.e. skattgreiðenda. Hækkanir á kjörum sem sagðar eru taka mið af almennum launabreytingum á íslenskum vinnumarkaði.
Það er því von Framsýnar, stéttarfélags að sá velvilji stjórnar Landsvirkjunar til að hækka eigin laun og laun lykilstjórnenda fyrirtækisins verði til þess hún bregðist vel við beiðni stéttarfélagsins um að almennir starfsmenn innan Landsvirkjunar fái einnig notið hluta þess mikla hagnaðar sem fyrirtækið skilaði á síðasta ári.
Virðingarfyllst
Fh. Framsýnar, stéttarfélags
_______________________________
Aðalsteinn Á. Baldursson