Þingmenn Samfylkingarinnar og Pírata lögðu fram vantrauststillögu á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra seint í gærkvöldi. Samkvæmt Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, er hefð fyrir því að slíkar tillögur séu teknar á dagskrá við fyrsta tækifæri, en Steingrímur J. Sigfússon sagði við mbl.is að tillagan verði tekin fyrir eins fljótt og aðstæður leyfi.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sögðust í samtali við Eyjuna ekki vita hug þeirra Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur og Andrésar Inga Jónssonar, þingmanna VG, varðandi vantraust í garð Sigríðar. Þau tvö voru mótfallinn ríkisstjórnarsamstarfi VG við Sjálfstæðisflokkinn.
Ekki náðist í þau Rósu og Andrés.
Ríkisstjórnin reiðir sig á 33 þingmenn meirihlutans gegn 28 þingmönnum stjórnarandstöðunnar, án Rósu og Andrésar. Þó svo að þau Andrés og Rósa greiddu með tillögunni um vantraust, þyrfti stjórnarandstaðan samt sem áður tvo aðra þingmenn úr röðum stjórnarinnar til þess að samþykkja tillöguna.
Gera má ráð fyrir að þorri þingmanna stjórnarandstöðunnar styðji tillöguna, en Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði við Vísi í gær að hún vildi stíga varlega til jarðar og bíða niðurstöðu Hæstaréttar í dómsmálinu er snýr að vanhæfi Arnfríðar Einarsdóttur, Landsréttardómara.
Þá herma heimildir Eyjunnar að allir þingmenn Miðflokksins muni styðja tillöguna.
Óneitanlega er VG í óþægilegri stöðu að þurfa að verja ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem gerðist brotlegur við stjórnsýslulög. Á samfélagsmiðlum er ýmsum tíðrætt um hvort og þá hvernig þingmenn VG muni verja Sigríði Á. Andersen í pontu Alþingis fyrir vantrausti. Er fólk þá ekki endilega að horfa til niðurstöðunnar, heldur hvaða rökum verði beitt Sigríði til varnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lýsti því yfir í gær að hún bæri fullt traust til allra ráðherra, þar á meðal Sigríðar.