Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur tekið að sér að vera pólitískur ráðgjafi Eyþórs Arnalds, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Verði Eyþór borgarstjóri að loknum kosningum, mun Kjartan verða aðstoðarmaður hans í því embætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Kjartan er að góðu kunnur innan Sjálfstæðisflokksins og hefur verið borgarfulltrúi fyrir
flokkinn um langt árabil. Fáir þekkja því betur til málefna borgarinnar.
Þá hefur Janus Arn Guðmundsson blaðamaður verið ráðinn framkvæmdastjóri
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Starfið felst í alhliða þjónustu við borgarfulltrúa
sem og frambjóðendur flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.