fbpx
Sunnudagur 18.ágúst 2024
Eyjan

Gistinóttum hótela fækkar milli ára

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 28. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 285.200, sem er 1% samdráttur frá sama mánuði árið áður. Um 72% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 204.300. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði um 60% frá janúar fyrra árs. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Um 91% gistinátta voru skráðar á erlenda ferðamenn, en erlendum gistinóttum fækkaði um 1% frá janúar í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 8%. Bretar gistu flestar nætur (88.400), síðan Bandaríkjamenn (66.800) og Kínverjar (18.700) , en gistinætur Íslendinga voru 26.300.

 

 

 

Á tólf mánaða tímabili, frá febrúar 2017 til janúar 2018, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.266.300 sem er 8% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

57% nýting herbergja á hótelum í janúar
Herbergjanýting í janúar 2018 var 57,0%, sem er lækkun um 5,2 prósentustig frá janúar 2017 þegar hún var 62,2%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,3% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í janúar var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 74,8%.

Áætlun á heildarfjölda gistinátta fyrir allar tegundir gististaða í janúar
Hagstofan áætlar að heildarfjöldi gistinátta á öllum tegundum gististaða hafi í janúar verið um 455.200. Af þeim gistinóttum, sem eru áætlaðar af gististöðum skráðum í gistináttagrunn Hagstofunnar, má ætla að gistinætur erlendra gesta hafi verið um 406.400 og gistinætur Íslendinga um 48.800. Auk hótela og gistiheimila er um að ræða gististaði, s.s. farfuglaheimili, orlofshús, svefnpokagististaði, íbúða- og heimagistingu auk tjaldsvæða og skála í óbyggðum. Gistirými skráð á Airbnb og aðrar sambærilegar vefsíður eru yfirleitt ekki með í talningu Hagstofunnar þar sem upplýsingum um leigusala er ábótavant. Stærri gististaðir sem skráðir eru á þessar síður eru þó yfirleitt með í gögnunum. Verið er að undirbúa mánaðarlega birtingu á áætluðum fjölda gistinátta sem greitt er fyrir gegnum AirBnB og áætlað er að þær tölur verði komnar í gistináttatölfræði Hagstofunnar fyrir apríl 2018.

Tölurnar eru ekki endanlegar þar sem ekki hefur verið gengið frá mati á gistinóttum fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel. Gert er ráð fyrir að þær verði uppfærðar í birtingu um gistinætur ársins 2017 í mars 2018.

Gistinætur á hótelum
Janúar Febrúar–janúar
2017 2018 % 2017 2018 %
Alls 288.745 285.249 -1 3.956.988 4.266.289 8
Höfuðborgarsvæði 211.595 204.265 -3 2.499.510 2.591.331 4
Suðurnes 19.889 18.423 -7 218.280 299.544 37
Vesturland og Vestfirðir 6.311 6.677 6 175.674 190.455 8
Norðurland 6.562 10.496 60 284.441 301.543 6
Austurland 1.555 1.541 -1 108.539 108.323 0
Suðurland 42.833 43.847 2 670.544 775.093 16
Íslendingar 28.469 26.277 -8 406.207 426.033 5
Erlendir gestir 260.276 258.972 -1 3.550.781 3.840.256 8

Eins og fram kemur í lýsigögnum um fjölda gististaða, gesta og gistinátta á vef Hagstofu Íslands tekur söfnun Hagstofunnar til allrar seldrar gistiþjónustu, að orlofshúsum félagasamtaka undanskildum. Tölfræðin er unnin eftir forskrift í reglugerð Evrópusambandsins nr.692/2011 um ferðaþjónustu. Að gefnu tilefni er bent á að gisting sem veitt er án þess að greiðsla fyrir hana sé innt af hendi, s.s. hjá vinum, ættingjum eða í tengslum við íbúðaskipti, „sófagesti“ og gistingu í húsbílum og tjöldum utan greiðsluskyldra tjaldsvæða fellur utan ramma gistináttatölfræði Hagstofunnar.

Tölur fyrir 2017 og 2018 eru bráðabirgðatölur. Um þessar mundir fer fram vinna við endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðerni ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu fyrir útgáfu endanlegra talna fyrir gistinætur á öllum tegundum gististaða fyrir árið 2017.

Talnaefni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætla að sprengja ríkistjórnina og láta kjósa með skömmum fyrirvara

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætla að sprengja ríkistjórnina og láta kjósa með skömmum fyrirvara
Eyjan
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Íslamskir ofsatrúarmenn

Björn Jón skrifar: Íslamskir ofsatrúarmenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hart sótt að Áslaugu Örnu – „Það er ykkar Kleppur að díla við“

Hart sótt að Áslaugu Örnu – „Það er ykkar Kleppur að díla við“