Samkvæmt heimildum Eyjunnar mun Björt framtíð bjóða fram lista í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Er Nicole Leigh Mosty sögð vera borgarstjóraefni flokksins, en hún er fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar úr Reykjavíkurkjördæmi suður, frá 2016-17.
Þau Sigurður Björn Blöndal og Elsa Hrafnhildur Yeoman, borgarfulltrúar flokksins í meirihluta borgarstjórnar, hyggjast ekki gefa kost á sér áfram og því er listi flokksins þunnskipaður í augnablikinu. Viðræður milli Bjartrar framtíðar og Viðreisnar voru hafnar skömmu eftir jól, en í kjölfar skoðanakönnunar Viðskiptablaðsins um fylgi flokkanna í borginni, féll Viðreisn frá þeim viðræðum. Björt framtíð mældist aðeins með 2,4% fylgi, sem er ekki nóg til að ná inn manni, en fékk hinsvegar 15,6% fylgi í kosningunum 2014 og því um sannkallað fylgishrun að ræða.
Í æviágripi Nicole á vef Alþingis segir:
Fædd í Three Rivers Michigan í Bandaríkjunum 19. október 1972. Foreldrar: Ronald Steven Hotovy (fæddur 5. mars 1950, dáinn 14. september 2005) verkfræðingur og Vickie Jean Austin húsmóðir (fædd 11. júní 1950). Maki: Garðar Kenneth Mosty Gunnarsson (fæddur 19. ágúst 1973). Foreldrar: Gunnar Kenneth Wayne Mosty og Esther Jörundsdóttir. Stjúpfaðir Garðars er Jón Grétar Haraldsson. Börn: Tómas Jamie (2008), Leah Karin (2009). Stjúpdóttir: Ingibjörg Linda Jones (1993).
Lokapróf frá Sturgis High School, Sturgis Michigan Bandaríkjunum, 1990. Diploma Culinary Arts frá Cambridge School of Culinary Arts Cambridge Massachusetts, 1999. B.Ed.-próf í leikskólakennarafræðum frá KHÍ 2007. M.Ed.-próf frá HÍ í náms- og kennslufræði með kjörsviðið mál og læsi 2013.
Ræstingar 2000–2007. Leiðbeinandi við leikskólann Heiðarborg 2000–2003. Leiðbeinandi, leikskólakennari, deildarstjóri, verkefnastjóri við leikskólann Múlaborg 2004–2009. Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Ösp 2009–2011, leikskólastjóri 2011–2016.
Ritari St. Jósefssóknar hinnar kaþólsku kirkju á Íslandi 2009. Formaður hverfisráðs Breiðholts frá 2014. Varamaður í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur 2014–2016. Varamaður í stjórn Skógarbæjar 2015–2016.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2016–2017 (Björt framtíð).
Allsherjar- og menntamálanefnd 2016–2017, velferðarnefnd 2017 (formaður).