Verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á sviði barnaverndar í kjölfar umkvartana í málaflokknum, þar sem Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefur verið miðdepillinn. Er hann sakaður um óeðlileg afskipti af einstaka málum í starfi sínu og er nýbyrjaður í ársleyfi frá störfum, þar sem hann hyggsst verða framboðsfulltrúi Íslands til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, með stuðningi Ásmundar Einars Daðasonar, félagsmálaráðherra og ríkisstjórnarinnar allrar.
Á vef Sambands íslenskra sveitafélaga kemur fram að Bragi Guðbrandsson, hinn umdeildi forstjóri Barnaverndarstofu, hyggist vinna að verkefnum sem tengjast endurskoðun á barnaverndarlögum, samkvæmt samkomulagi hans við Velferðarráðuneyti Ásmundar Einars Daðasonar, ráðherra. Í ljósi umkvartana á störfum Braga hjá Barnaverndarstofu, verða þessar málalyktir að teljast harla sérstakar:
„Ráðherra segir að fyrirhugaðar breytingar á sviði barnaverndar séu að hluta til liður í viðbrögðum ráðuneytisins til að endurheimta traust í kjölfar fyrrnefndra umkvartana, þó að þeim sé einnig ætlað að bæta stjórnsýslu málaflokksins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barnavernd.
Þá hefur félagsmálaráðherra einnig ákveðið að ráðast í ítarlega skoðun á þjónustu við börn með það meginmarkmiði að tryggja skjóta íhlutun og stuðla að samfellu í þjónustunni þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjölskyldna. Þessi vinna mun skv. upplýsingum frá velferðarráðuneytinu nýtast við yfirstandandi endurskoðun á barnaverndarlögum og kveðið er á um í framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar nr. 15/146. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, mun á næstunni vinna að verkefnum sem þessu tengjast á grundvelli samkomulags sem gert hefur verið á milli hans og velferðarráðuneytisins.“
Hvorki Bragi né Ásmundur hafa viljað tjá sig um málið, en Velferðarráðuneytið hefur birt bréf þess til þriggja barnaverndarnefnda og Barnaverndarstofu, til að gera grein fyrir niðurstöðum sínum vegna umkvartana nefndanna varðandi samskipti þeirra við Braga Guðbrandsson og annað starfsfólk Barnaverndarstofu.
Af vefsíðu Sambands íslenskra sveitafélaga:
Auk þess sem ráðist verður í heildarendurskoðun á barnaverndarlögum og skýrar formkröfur settar um samskiptahætti stjórnvalda í barnavernd, verður eftirlit með barnaverndarstarfi að hluta falið nýrri gæða- og eftirlitsstofnun. Velferðarráðuneytið boðar með þessum breytingum öflugra barnaverndarstarf á grunni sterkari stjórnsýslu. Ráðuneytið vonast einnig til að Barnaverndarstofa endurheimti samhliða fyrra traust,
Frumvarp til laga um eftirlit með barnavernd er þegar komið á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, en hluti þeirra verkefna sem þar er tíundaður verður á höndum nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar sem tekur til starfa innan skamms hjá velferðarráðuneytinu.
Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra, fundaði í lok síðustu viku með formönnum barnaverndarnefnda Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs og kynnti þeim þessar áformuðu breytingar, en formenn nefndanna leituðu í vetur ásjár velferðarráðuneytisins vegna Barnaverndarstofu og samskipta við forstjóra hennar.
Ráðherra segir að fyrirhugaðar breytingar á sviði barnaverndar séu að hluta til liður í viðbrögðum ráðuneytisins til að endurheimta traust í kjölfar fyrrnefndra umkvartana, þó að þeim sé einnig ætlað að bæta stjórnsýslu málaflokksins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barnavernd.
Þá hefur félagsmálaráðherra einnig ákveðið að ráðast í ítarlega skoðun á þjónustu við börn með það meginmarkmiði að tryggja skjóta íhlutun og stuðla að samfellu í þjónustunni þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjölskyldna. Þessi vinna mun skv. upplýsingum frá velferðarráðuneytinu nýtast við yfirstandandi endurskoðun á barnaverndarlögum og kveðið er á um í framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar nr. 15/146. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, mun á næstunni vinna að verkefnum sem þessu tengjast á grundvelli samkomulags sem gert hefur verið á milli hans og velferðarráðuneytisins.