fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

„Þingmenn sem þegið hafa bætur og ráðstafað því í kaup á húsnæði ættu að skila því, ella vera bornir út“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 11:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórólfur Júlían Dagsson

Þórólfur Júlían Dagsson, stjórnarmeðlimur Pírata á Suðurnesjum, spyr hvort það sé ekki réttmæt krafa að fólk sem búi ekki í því sveitarfélagi sem það vinnur, fái sömu kjör og þingmenn. Þá vill hann að allar upplýsingar um fjárveitingar til þingmanna síðustu 20 árin verði gerð opinber. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórólfi.

Hann segir þingmenn misnota sameiginlega sjóði og er væntanlega að vísa til endurgreiðslu Alþingis á akstri Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og húsnæðiskostnað Steingríms J. Sigfússonar.

„Nú er mikið talað um skort á trausti til Alþingis og virðingu þess. Sumir þingmenn tala reyndar eins og þetta sé eitthvað sem þurfi bara að fara í nefnd og virðast ekki sjá, eða láta sem þeir sjái ekki, tengslin milli vantrausts og frétta af því hvernig þingmenn misnota sameiginlega sjóði til að ferðast í einkaerindum, hvernig aðrir þingmenn þiggja húsnæðisstyrki fyrir lögheimili á eyðibýlum þótt vitað sé að raunverulegt heimili þeirra er í glæsihúsum í borginni, og þörfin á húsnæðisstyrkjum því engin.“

Þórólfi finnst heldur ekki réttlætanlegt að hækka laun þingmanna:

„Mér finnst það ekki réttlætanlegt að hækka launakostnað þingmanna á þeim forsendum að þau hafi ekki fylgt launaþróun þegar fríðindi þeirra í starfi tekur á tveimur stærstu kostnaðarliðum hvers heimilis á landinu. Hversu lengi hefur þetta viðgengist? Er þetta kannski það sem allur okkar skattpeningur fer í?“

 

Þá vill Þórólfur að þingmenn sjái sóma sinn í að lækka laun sín:

„…ég vil að þingmenn sjái sóma sinn í því að sýna verkafólki þessa lands þá virðingu að lækka launin sín í samræmi við launaþróun vinnumarkaðarins og þeir lúti sömu lögmálum og öryrkjar þegar kemur að skerðingum krónu á móti krónu fyrir þessa styrki og þau heimili sem keypt hafa verið og kostuð með skattfé almennings. Þingmenn sem þegið hafa bætur og ráðstafað því í kaup á húsnæði ættu að skila því, ella vera bornir út eins og einstaklingar og fjölskyldur landsins sem að lentu í skuldavanda og misstu allt sit í hruninu. Þeir þingmenn sem sjá ekki eitthvað að þessu ættu að taka poka sinn og fara að vinna við eitthvað annað. Þið eruð þjónar fólksins. Sýnið fólkinu í landinu virðingu og þá fáið þið þá virðingu sem ykkur vantar svo sárlega til baka.“

 

Tilkynning Þórólfs í heild sinni:

Verkafólk á rétt á sömu kjörum og þingmenn

 

Nú er mikið talað um skort á trausti til Alþingis og virðingu þess. Sumir þingismenn tala reyndar eins og þetta sé eitthvað sem þurfi bara að fara í nefnd og virðast ekki sjá, eða láta sem þeir sjái ekki, tengslin milli vantrausts og frétta af því hvernig þingmenn misnota sameiginlega sjóði til að ferðast í einkaerindum, hvernig aðrir þingmenn þiggja húsnæðisstyrki fyrir lögheimili á eyðibýlum þótt vitað sé að raunverulegt heimili þeirra er í glæsihúsum í borginni, og þörfin á húsnæðisstyrkjum því engin.

 

Hæsti kostnaðarliðurinn hjá öllum heimilum landsins er bensín og húsnæði.

Venjulegt fólk fær ekki aðstoð við þessa útgjaldaliði. Laun þess fara í að greiða fyrir húsnæði og aksturskostnað. Það fær ekki úthlutað 40% launahækkun af nefnd sem það skipaði sjálft. Það á ekki rétt á húsaleigubótum ef heildarlaun ná 400.000.

 

Á sama tíma þarf venjulegt fólk að búa við það að sveiflur í kostnaði við akstur og húsnæði hafa áhrif á lánin þeirra. Olíukostnaður hefur einnig áhrif á matvöruverð og alla vöru sem þarf að flytja í verslanir, laun þess eru sjaldnast verðtryggð en það eru lánin.

 

Maður spyr sig hvort ekki sé réttmæt krafa að fólk sem að býr ekki í því sveitarfélagi sem það vinnur í fái sömu kjör og þingmenn?

 

Mér finnst það ekki réttlætanlegt að hækka launakostnað þingmanna á þeim forsendum að þau hafi ekki fylgt launaþróun þegar fríðindi þeirra í starfi tekur á tveimur stærstu kostnaðarliðum hvers heimilis á landinu. Hversu lengi hefur þetta viðgengist?

Er þetta kannski það sem allur okkar skattpeningur fer í?

Ég vill að allar upplýsingar um fjárveitingar til þingmanna síðustu 20 árin verði gerðar opinberar, ég vill að þingmenn sjái sóma sin í því að sýna verkafólki þessa lands þá virðingu að lækka launin sín í samræmi við launaþróun vinnumarkaðarins og þeir lúti sömu lögmálum og öryrkjar þegar kemur að skerðingum krónu á móti krónu fyrir þessa styrki og þau heimilli sem keypt hafa verið og kostuð með skattfé almennings. Þingmenn sem þegið hafa bætur og ráðstafað því í kaup á húsnæði ættu að skila því, ella vera bornir út eins og einstaklingar og fjölskyldur landsins sem að lentu í skuldavanda og misstu allt sit í hruninu. Þeir þingmenn sem sjá ekki eitthvað að þessu ættu að taka poka sinn og fara að vinna við eitthvað annað. Þið eruð þjónar fólksins. Sýnið fólkinu í landinu virðingu og þá fáið þið þá virðingu sem ykkur vantar svo sárlega til baka.

Þórólfur Júlían Dagsson Stjórnarmeðlimur Pírata á Suðurnesjum

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Óánægjan með Einar og meirihlutann í borginni fer vaxandi en flokkarnir tapa mjög misjafnlega á því

Óánægjan með Einar og meirihlutann í borginni fer vaxandi en flokkarnir tapa mjög misjafnlega á því
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stórtíðindi í nýrri könnun: Viðreisn spólar fram úr Samfylkingu – Framsókn á útleið?

Stórtíðindi í nýrri könnun: Viðreisn spólar fram úr Samfylkingu – Framsókn á útleið?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigurður Ingi hjólar af krafti í Sjálfstæðisflokkinn – „Þá hefðum við átt að segja nú er nóg komið“

Sigurður Ingi hjólar af krafti í Sjálfstæðisflokkinn – „Þá hefðum við átt að segja nú er nóg komið“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út