Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um eitt embætti dómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Arnaldur Hjartarson, aðstoðarmaður dómara við EFTA dómstólinn, var metinn hæfastur af umsækjendum. Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins.
Í umsögn um Arnald segir meðal annars að Arnaldur hafi almenna og víðtæka lögfræðiþekkingu, eigi að baki glæsilegan námsferil við HÍ og Yale háskólann í Bandaríkjunum, og hafi á skömmum tíma náð verulegum árangri í fræðimennsku, þrátt fyrir ungan aldur. Arnaldur hafi reynslu af kennslu á háskólastigi og af honum fari gott orð. Þess má geta að Arnaldur dúxaði í Yale, hlaut hæstu einkunn í öllum greinum.
Þá er bara spurning hvernig Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra tekur á málinu, hvort hún fari eftir mati og tillögum hæfnisnefndarinnar, eða leggi sjálf til aðra tillögu, en hún hefur til þess tvær vikur.
Í 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla segir:
„Óheimilt er að skipa í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Frá þessu má þó víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægir að mati dómnefndar öllum skilyrðum til að hljóta skipun í embættið. Ráðherra skal þá leggja slíka tillögu fyrir Alþingi innan tveggja vikna frá því að umsögn dómnefndar er afhent honum eða innan þess tíma frá því að Alþingi kemur næst saman eftir að umsögn er fengin og verður tillaga að vera samþykkt innan mánaðar frá því að hún er lögð fram, ella er ráðherra bundinn af umsögn dómnefndar. „
Umsóknarfrestur var til 11. desember og barst 31 umsókn. Sex umsækjendur, sem skipaðir höfðu verið í embætti héraðsdómara frá 9. janúar sl., drógu umsóknir sínar til baka.
Dómnefndina skipuðu: Jakob R. Möller, Kristín Benediktsdóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Ragnheiður Harðardóttir og Ragnhildur Helgadóttir.