Tólf aðildarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) hafa undirritað nýja kjarasamninga við ríkið. Um er að ræða Dýralæknafélag Íslands (DÍ), Félag íslenskra félagsvísindamanna (FÍF), Félag lífeindafræðinga (FL), Félag sjúkraþjálfara (FS), Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS), Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ), Fræðagarð (FRG), Iðjuþjálfafélag Íslands (IÞÍ), Sálfræðingafélag Íslands (SÍ), Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU), Stéttarfélag lögfræðinga (SL) og Þroskaþjálfafélag Íslands (ÞÍ). Gildistími samninganna er frá 1. september 2017 til 31. mars 2019.
Allir samningar félaganna voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki félagsmanna en á næstunni verða efnisatriði þeirra kynnt innan félaganna og þeir síðan bornir undir atkvæði.
Ekki verður upplýst um efnisatriði samninganna fyrr en þeir hafa verið kynntir félagsmönnum.
Sem kunnugt er hafa samningar sautján aðildarfélaga BHM við ríkið verið lausir frá því sl. haust. Enn eiga tvö aðildarfélög í beinum viðræðum við samninganefnd ríkisins: Félag geislafræðinga (FG) og Félag íslenskra leikara (FÍL). Þrjú félög hafa vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara: Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Ljósmæðrafélag Íslands (LMFÍ).
Um Bandalag háskólamanna (BHM)
Bandalag háskólamanna er samtök 27 fag- og stéttarfélaga háskólamenntaðs fólks með samtals um 13 þúsund félagsmenn innan sinna raða. Félagsmenn starfa á öllum sviðum íslensks atvinnulífs, jafnt hjá ríki, sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og einkafyrirtækjum. Nánari upplýsingar um BHM má nálgast á heimasíðu bandalagsins, www.bhm.is.