Í dag voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2017 kynntar og er þetta nítjánda árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.
Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 25 fyrirtæki í 8 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.100 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Líkt og undanfarin fjögur ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.
Í ár var afhent viðurkenning á fimm mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 86,5 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 76,4 á farsímamarkaði, Vínbúðir ÁTVR fengu 74,1 stig á smásölumarkaði, BYKO fékk 68,9 á byggingavörumarkaði og Íslandsbanki fékk 66,5 stig á bankamarkaði. Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með lægstu einkunnina eða 59,1 stig.
Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög, raforkusölur og matvörumarkaður. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér að neðan.
Bankar | 2017 | 2016 | Farsímamarkaður | 2017 | 2016 | |
Íslandsbanki | 66,5* | 65,2* | Nova | 76,4* | 72,1* | |
Landsbankinn | 63,2 | 61,3 | Vodafone | 69,7 | 65,4 | |
Arion banki | 63,1 | 59,0 | Síminn | 66,9 | 66,0 | |
Tryggingafélög | 2017 | 2016 | Eldsneytisfélög | 2017 | 2016 | |
Sjóvá | 66,77 | 67,76 | Costco bensín | 86,5* | N/A | |
TM | 66,76 | 68,57 | Atlantsolía | 68,8 | 74,0* | |
Vörður | 66,25 | 69,64 | Orkan | 67,2 | 69,2 | |
VÍS | 61,83 | 64,00 | ÓB | 67,0 | 69,7 | |
Olís | 66,1 | 70,0 | ||||
Raforkusölur | 2017 | 2016 | N1 | 63,7 | 67,0 | |
HS Orka | 68,0 | 61,4 | ||||
Orka náttúrunnar | 64,4 | 65,5* | Smásöluverslun | 2017 | 2016 | |
Orkusalan | 63,8 | 59,0 | Vínbúðir ÁTVR | 74,1* | 71,8 | |
BYKO | 68,9 | N/A | ||||
Matvöruverslanir | 2017 | 2016 | Krónan | 68,9 | N/A | |
Krónan | 68,9 | N/A | Nettó | 68,8 | N/A | |
Nettó | 68,8 | N/A | Bónus | 64,5 | N/A | |
Bónus | 64,5 | N/A | Húsasmiðjan | 62,3 | N/A | |
Costco | 59,1 | N/A | ||||
Byggingavöruverslanir | 2017 | 2016 | ||||
BYKO | 68,9* | N/A | ||||
Húsasmiðjan | 62,3 | N/A | ||||
*Marktækt hæsta einkunn á viðkomandi markaði. |
Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:
Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvoginásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.
Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.