fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
Eyjan

Mjólkursamsalan um málshöfðun Samkeppniseftirlitsins: „Málarekstur sem fær ekki staðist“

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 25. janúar 2018 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mjólkusamsalan hefur sent frá sér tilkynningu vegna málshöfðunar Samkeppniseftirlitsins:

Samkeppniseftirlitið(SE)  hefur höfðað dómsmál gegn Mjólkursamsölunni(MS) til ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi var að MS hefði ekki brotið nein lög með framgöngu sinni á markaði. MS leitar úrlausnar dómstóla samhliða málshöfðum SE.

Enda þótt mjólkuriðnaðurinn hafi heimild til samstarfs á grundvelli búvörulaga er hann ekki undanþeginn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Samkeppniseftirlitið heldur því fram í málshöfðun sinni að MS hafi brotið gegn banninu en áfrýjunarnefndin talið að ákvæði búvörulaga veittu undanþágu frá bannreglunni. Enginn fótur er fyrir þessari túlkun því niðurstaðan byggðist á að engin misnotkun hefði átt sér stað. Áfrýjunarnefndin úrskurðaði að framkvæmd samstarfsins hefði verið málefnaleg og forsvaranleg.

Ljóst er af afskiptum samkeppnisyfirvalda af málefnum mjólkuriðnaðarins, að Samkeppniseftirlitið fjallar ekki um málefni MS og mjólkuriðnaðarins af þeirri hlutlægni, sem gera verður kröfu um til stofnunar á vegum ríkisins. Hefur saga þeirra afskipta síðustu tuttugu árin verið tekin saman og talar skýru máli. Framganga MS á markaði hefur verið í samræmi við efnisreglur samkeppnislaga og annarra laga. Síendurteknar fullyrðingar stjórnenda Samkeppniseftirlitsins um annað hafa ekki staðist. Það er augljóst að stjórnendur þess eru ósáttir við það fyrirkomulag sem löggjafinn hefur ákveðið að hafa á mjólkurmarkaði en þeim ber eins og öðrum í samfélaginu að virða gildandi lög.

Nýjasta varðan í þessari sögu er niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í nóvember 2016, sem felldi úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá í júlí 2016 sem hafði sektað MS um 440 mkr fyrir meint samkeppnislagabrot. Var sektin endurgreidd með vöxtum. 40 mkr sekt fyrir upplýsingabrot undir rekstri málsins var hins vegar staðfest en dómstólar munu nú einnig fjalla um þann þátt málsins.

Reykjavík, 25.01.2018

Tímalína um afskipti samkeppniseftirlitsins að málefnum mjólkuriðnaðarins:

https://www.ms.is/um-ms/samkeppnismal/timalina

Fréttatilkynning Samkeppniseftirlitsins:

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnar kröfu MS um frávísun

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag hafnaði dómurinn kröfu Mjólkursamsölunnar (MS) um að vísað yrði frá dómi máli sem Samkeppniseftirlitið hefur höfðað til þess að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS og hvort brot hafi átt sér stað. Hefur Samkeppniseftirlitið talið að mikilvægt væri fyrir hagsmuni smærri framleiðenda, bænda og neytenda að fá úr þessu skorið. Úrskurðurinn felur í sér að málið fær nú efnismeðferð fyrir héraðsdómi.

Forsaga málsins er sú að í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að MS hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja smáum keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Jafnframt hefði MS brotið gegn skyldu samkeppnislaga til þess að veita sannar og fullnægjandi upplýsingar. Lagði Samkeppniseftirlitið á MS 440 mkr. sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og 40 mkr. sekt vegna brota á upplýsingaskyldu.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 21. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40 mkr. sekt vegna þess.

 Eftir skoðun á forsendum úrskurðar meirihluta áfrýjunarnefndar taldi Samkeppniseftirlitið nauðsynlegt að stefna MS fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að fá hnekkt  framangreindri niðurstöðu um samspil búvörulaga og samkeppnislaga. Miðar sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS. Jafnframt verði fengin fullnaðarúrlausn um hvort fyrirtækið skuli sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað er um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefur metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum. Mun Samkeppniseftirlitið krefjast þess að MS greiði þá stjórnvaldssekt sem eftirlitið taldi hæfilega í ákvörðun sinni frá júlí 2016.

 MS krafðist þess að máli Samkeppniseftirlitsins yrði vísað í heild sinni frá dómi. Telur MS m.a. að Samkeppniseftirlitið hafi ekki heimild til þess að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort meirihluti áfrýjunarnefndar samkeppnismála hafi túlkað undanþáguákvæði búvörulaga með réttum hætti. Jafnframt telur MS að Samkeppniseftirlitinu sé ekki stætt að því að fara fram á að dómstólar kveði á um þá sekt sem MS beri að greiða vegna brota á samkeppnislögum.

Málflutningur um frávísunarkröfu MS fór fram í morgun og kvað dómari upp úrskurð sinn í kjölfar hans. Var kröfu MS um frávísun málsins hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins
Eyjan
Í gær

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina
Eyjan
Í gær

Kosningaspá DV þremur dögum fyrir kjördag – miðjustjórn í kortunum

Kosningaspá DV þremur dögum fyrir kjördag – miðjustjórn í kortunum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Þau leynast víða vinstri slysin – enn á ný horfa sjálfstæðismenn til vinstri

Orðið á götunni: Þau leynast víða vinstri slysin – enn á ný horfa sjálfstæðismenn til vinstri
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur