Umbrotsmenn dagblaða geta stundum haft skemmtileg áhrif á túlkun lesenda á hverri síðu sem þeir brjóta um, hvort sem það er viljandi eður ei.
Eitt slíkt dæmi má sjá í Morgunblaðinu í dag, þar sem Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar grein undir yfirskriftinni: „Rjúfum kyrrstöðuna í Reykjavík.“
Grein Kjartans er nokkuð hefðbundin frambjóðendagrein, sem gagnrýnir meirihlutann í borgarstjórn meðal annars fyrir lóðarskort og hátt húsnæðisverð.
Þetta væri svosem ekki í frásögur færandi, ef ekki prýddi mynd eftir Árna Sæberg, ljósmyndara Morgunblaðsins, nánast hálfa síðuna ofan við grein Kjartans, af byggingakrönum í miðborginni, en byggingarkranar eru nokkurskonar holdgervingur framfara og framkvæmda. Í raun andstæða kyrrstöðu.
Dagur B. Eggertsson var fljótur að koma auga á þetta í morgun og gat ekki stillt sig um að skjóta létt á Kjartan og Morgunblaðið á Twitter:
„Mogginn jarðar óvart prófkjörsframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins sem ætla að “rjúfa kyrrstöðuna í Reykjavík” og birtir í morgun mynd af örsmáum bletti úr miðborginni með ekki færri en sjö byggingarkrönum. Hefði ekki geta svarað þessu betur sjálfur. #alltáfullu #betriReykjavik“
Samkvæmt ítarlegum rannsóknum kranatalningardeildar Frjálsrar fjölmiðlunar eru kranarnir þó aðeins sex, en ekki sjö líkt og borgarstjórinn heldur fram. Tíst Dags um að hann hafi talið ekki færri en 70 álftir í Tjörninni um daginn, fær því hugsanlega nýja merkingu.
Mogginn jarðar óvart prófkjörsframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins sem ætla að “rjúfa kyrrstöðuna í Reykjavík” og birtir í morgun mynd af örsmáum bletti úr miðborginni með ekki færri en sjö byggingarkrönum. Hefði ekki geta svarað þessu betur sjálfur. #alltáfullu #betriReykjavik pic.twitter.com/5f4TfcJat0
— Dagur B. Eggertsson (@Dagurb) January 25, 2018
Taldi ekki færri en 70 álftir á Tjörninni. Ótrúlega margir ungar sem hafa komist á legg. Pasar við það að lífríkið í Tjörninni er að þróast í rétta átt. Gaman! #betriReykjavik pic.twitter.com/zwYJVUgrUw
— Dagur B. Eggertsson (@Dagurb) January 17, 2018