Í Financial Times má lesa mikla úttekt á því hvernig Nató og Rússland eru að þróa hernaðarmátt sinn í Evrópu og á Norðurslóðum – Nató til þess að halda Rússum í skefjum Með greininni fylgir listi yfir helstu átakapunktana milli Nató og Rússa og þar er Keflavíkurstöðin nefnd sérstaklega. Við erum semsagt aftur að upplifa tíma þegar Ísland telst vera hernaðarlega mikilvægt, líkt og var í heimsstyrjöldinni síðari og í kalda stríðinu.
Keflavíkurstöðin: Endurvakning þessarar stöðvar á Íslandi sýnir hvernig staða öryggismála í Evrópu hefur breyst. Fastar sveitir bandaríska flughersins hurfu burt fyrir meira en áratug þegar hernaðarmáttur dróst saman eftir lok kaldastríðsins. En innviðir stöðvarinnar virka ennþá og hafa verið notaðir í auknu eftirliti Nato með loftferðum síðan Rússar hertóku Krím árið 2014.
Hér má svo sjá kynningarstiklu fyrir heimildarmyndina Varnarliðið – Kaldastríðsútvörður sem verður sýnd á RÚV innan tíðar.