fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Forseti Póllands hafnar lögum í kjölfar mótmæla

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 24. júlí 2017 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrzej Duda forseti Póllands tilkynnti um ákvörðun sína í morgun. Mynd/EPA

Andrzej Duda for­seti Pól­lands hefur neitað að staðfesta umdeild lög sem myndu veita ráðherrum vald til að þess að skipa og reka hæstaréttardómara án aðkomu þingsins. Hörð mótmæli hafa geisað í Póllandi undanfarna daga gegn lögunum. Greint er frá þessu á vef BBC. Í kjölfar þess að lögin voru samþykkt á pólska þinginu hafa þau einnig verið gagnrýnd af hálfu Evrópusambandsins.

Frá mótmælum í Varsjá í gær. Mynd/EPA

Hefur Evrópuráðið hótað að beita Pólland viðskiptaþvingunum ef lögin hefðu verið staðfest. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hægrisinnuð ríkisstjórn Póllands þarf að lúta í lægra haldi fyrir mótmælendum, en í fyrra var frumvarpi sem kvað á um algjört bann við fóstureyðingum hafnað í kjölfar mótmæla, bæði í Póllandi sem og víðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka