Síðustu nætur hefur fjölda bifreiða orðið eldi að bráð í Ósló, höfuðborg Noregs. Undanfarnar tvær nætur hafa minnst ellefu bílar orðið eldi að bráð. Talið er að kveikt hafi verið í bílunum þar sem þeir hafði verið lagt yfir nóttina.
Íkveikjur í bílum hefur lengi verið vandamál í ýmsum hverfum borga í Svíþjóð en Norðmenn hafa til þessa að mestu verið lausir við þetta vandamál. Þetta virðist nú hins vegar hafa breitt úr sér yfir landamærin til Noregs. Þannig brunnu þrír bílar aðfaranótt sl. þriðjudags.
Um þverbak keyrði í nótt. Skömmu eftir miðnætti að norskum tíma var tilkynnt um tvo bíla í ljósum logum á Fururset í Ósló. Rétt fyrir þrjú fékk lögregla svo tilkynningu um bílabruna í Herlebs-götu í gamla borgarhluta Ósló. Þar brann fyrst í einum bíl og logarnir náðu að læsa sig í fimm aðra. Þannig eyðilögðust sex bifreiðar þar. Í heildina brunnu átta bílar á þremur stöðum í Ósló í nótt.
Norska dagblaðið Aftenposten birtir á fréttavef sínum í morgun frétt frá NTB-fréttastofunni um að lögreglan í Ósló ætli nú að grípa til aðgerða. Sterkur grunur um að kveikt hafi verið í bílunum. Fjöldi lögreglumanna vinna nú að rannsókn.
Að sjálfsögðu lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Allar tiltækar einingar hafa unnið að þessu í nótt, þar með talið þyrla lögreglunnar. Það hefur þegar verið gripið til sérstakra aðgerða og þeim mun fjölga,
segir Rune Ullsand aðgerðastjóri hjá lögreglunni í Ósló við NTB-fréttastofuna. Fjöldi lögreglumanna með hunda hafa síðustu tvær nætur leitað að hugsanlegum brennuvörgum, vitni eru yfirheyrð og unnið að tæknilegum rannsóknum á vettvangi brunanna.