fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Andstæðan við Trump, háir skattar, hagvöxtur og jöfnuður

Egill Helgason
Þriðjudaginn 9. maí 2017 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á vef Bloomberg fréttaveitunnar má lesa úttekt á sænska hagkerfinu sem byggir á háum sköttum, sterkum verkalýðsfélögum  og jöfnuði, eins og segir í greininni. Í fyrirsögn er talað um efnahagslegt kraftaverk í Svíþjóð. Sænska aðferðin er gerólík því sem Donald Trump boðar í Bandaríkjunum – en hún virkar svo vel að efnahagur Svíþjóðar blómstrar, þjóðin er mjög virk á vinnumarkaði, það er afgangur af fjárlögum og skuldir ríkisins eru mjög litlar.

Greinin byggir meðal annars á viðtali við Magdalena Anderson, fjármálaráðherra Svíþjóðar. Sósíaldemókratar hafa verið við völd í Svíþjóð síðan 2014, áður var nokkuð langt skeið miðju-hægristjórna. En stjórnmálaflokkar í Svíþjóð eru ekki gjarnir á að kollvarpa hlutum. Skattar hafa hins vegar farið hækkandi í tíð kratanna og í greininni segir að samtök atvinnurekenda og bankar telji að skattar megi alls ekki hækka meir, það sé komið nóg. Anderson segir að ekki verði þörf á frekari hækkunum, en sænska módelið sýni að hægt sé að hafa háa skatta, mikla atvinnu og hagvöxt. Hún segir að heilbrigðisþjónusta og menntun án tillits til afkomu fólks sé lykilatriði í góðu hagkerfi. Og að þarna sé lykillinn að því að takast á við ógnir og óstöðugleika hnattvæðingarinnar.

En um leið segir í greininni að Svíþjóð hafi raunsæja afstöðu til kapítalismans og fyrirtæki sem ekki spjari sig fái að fara á hausinn.

Síðustu árin hafa verið tími uppgangs í Svíþjóð. Fá hagkerfi hafa aðlagað sig jafn vel að nútímanum. Bloomberg birtir gröf þar sem má sjá að hagvöxtur í Svíþjóð hefur verið meiri en í flestum öðrum löndum samanlagt síðustu tuttugu árin og að laun í Svíþjóð hafa næstum tvöfaldast meðan þau hafa lækkað í Bandaríkjunum. Það sem vekur athygli þarna er afkoma 1 prósentsins sem þénar mest og svo hinna 90 prósentanna sem þéna minna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins