Ali Baba og Mandi á Ingólfstorgi eru með bestu veitingastaða í bænum. Þar fæst matur frá Miðausturlöndum á afar sanngjörnu og viðráðanlegu verði. Það verður að segjast eins og er, þótt maður búi í Miðbænum dettur manni ekki í hug að fara inn á stóran hluta veitingastaðanna þar – verðið er svo yfirgengilegt.
En Ali Baba og Mandi eru veruleg lífskjarabót. Maturinn þar er líka ágætlega hollur – ólíkt því sem er oft um skyndibita.
Veitingahúseigandi kvartar undan því að allir séu orðnir brjálaðir í Miðbænum. Ali Baba svarar með þessari skemmtilegu tilkynningu.