Skemmdir á lögreglubílum er orðin algeng sjón og stórt vandamál í Svíþjóð. Rúður bílanna eru brotnar, stungið er á dekk eða hreinlega kveikt í bílunum.
Bara á síðasta ári voru 87 lögreglubílar í höfuðborginni Stokkhólmi skemmdir eða gereyðilagðir.
Árásir á lögreglubíla í útköllum eru orðnar að vandamáli sem getur truflað stórlega störf lögreglumanna og ógnað öryggi borgaranna. Í stað þess að einbeita sér að því að hjálpa fólki á vettvangi neyðast lögregluþjónar til að standa vörð um bílana til að hindra að þeir séu eyðilagðir.
Sænska ríkissjónvarpið SVT greindi frá þessu í síðustu viku.
Þetta getur verið þannig að við erum í mjög áríðandi útkalli. Þegar fyrsti bíllinn mætir á vettvanginn yfirgefa lögreglumenn ökutækið til að sinna sínum störfum. Svo þegar næsti bíll kemur á staðinn þá uppgötva lögreglumenn að búið er að skemma fyrsta bílinn. Í stað þess að vinna okkar störf neyðumst við til þess að sinna okkar eigin búnaði [bílunum] og þá missum við athyglina frá því að starfa á vettvangi,
segir Hanif Azizi varðstjóri yfir Stokkhólmsúthverfunum Rinkeby, Tensta og Husby.
Þetta er grafalvarlegt og ég lít á þetta sem tilræði við samfélagið í heild sinni.
Það hindrar einnig lögregluna í störfum sínum að þurfa oft að fara krókaleiðir að stöðum þar sem tilkynnt hefur verið um afbrot því setið er fyrir lögreglubílum í útkalli og reynt að skemma þá svo sem með grjótkasti.
Það sem við höfum gert til þessa er að styrkja framrúður lögreglubílanna sérstaklega því þær brotna oftast,
segir Pia Sjunnegård svæðislögreglustjóri við SVT.
Á næsta ári er ætlunin að sænska lögreglan fái til afnota nýja gerð lögreglubíla sem eiga að þola árásir skemmdarverkamanna betur en þeir bílar sem hafa verið notaðir til þessa.