Bandaríski herinn gerði árás á Shayrat herflugvöllinn í Sýrlandi í nótt að staðartíma. 59 Tomahawk stýrflaugum var skotið á flugvöllinn. Fjórir sýrlenskir hermenn eru sagðir hafa látist í árásinni og flugvöllurinn er sagður hafa gjöreyðilagst.
Þessar upplýsingar eru frá sýrlenskum mannréttindasamtökum að sögn AFP. Árásin var hefnd fyrir meinta efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins á bæinn Idlib fyrr í vikunni en þar létust tugir manna, þar á meðal að minnsta kosti 20 börn.
Rússar, sem eru einu helstu bandamenn Sýrlandsstjórnar ásamt Íran, eru vægast sagt ósáttir við árásina. Þeir hafa boðað til neyðarfundar í öryggisráði SÞ vegna málsins. Ekki er þó líklegt að öryggisráðinu takist að álykta um málið þar sem Bandaríkin eiga sæti í því og hafa neitunarvald. Fundur öryggisráðsins um málið mun því væntanlega aðeins verða enn ein staðfestingin á getuleysi öryggisráðsins í málum þar sem stórveldin takast á og gæta hagsmuna sinna.
Viktor Ozerov, formaður varnarmálanefndar rússneska þingsins, sagði í nótt að árásin gæti hafa grafið undan baráttunni gegn hryðjuverkamönnum í Sýrlandi. Hann sagði einnig að árásin væri árás á eitt aðildarríki SÞ. Pútín, forseti Rússlands, sagði nú í morgun að árásin hafi verið ólögleg og að hún gæti valdið alvarlegu tjóni á sambandi Bandaríkjanna og Rússlands. Þá hafa talsmenn rússneskra stjórnvalda sagt að árásin sé brot á alþjóðalögum og árás á sjálfstætt ríki. Einnig segja þeir að árásin sé tilraun til að beina sjónum umheimsins frá mannfalli meðal óbreyttra borgara í Írak.
Viðbrögð ríkja heims við árásinni hafa verið mismunandi og litast af hverja þau styðja í þessum málum. Tyrknesk stjórnvöld segjast líta árásina jákvæðum augum og að hún verði til þess að friður komist á í landinu.
Bresk stjórnvöld segjast styðja árásina að fullu eftir því sem segir í yfirlýsingu frá breska forsætisráðherraembættinu.
Stjórnvöld í Íran eru hins vegar ekki sátt og segja að árásina muni eingöngu verða til að efla hryðjuverkamenn og flækja stöðuna á svæðinu.
Stjórnvöld í Sádí-Arabíu, sem eru bandalagsþjóð Bandaríkjanna, segja að Trump hafi sýnt hugrekki með ákvörðun sinni og styðja hana.