Frá því að Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna hefur hælisleitendum fjölgað mikið í Mexíkó en þeim hefur fjölgað um 150 prósent. Einnig eru mun færri, sem reyna að fara ólöglega yfir landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó, stöðvaðir á landamærunum. Flest bendir til að fólk frá Mið-Ameríku sæki nú frekar um hæli í Mexíkó en að reyna að komast til Bandaríkjanna. Meiri líkur séu á að það fái að dvelja í Mexíkó en Bandaríkjunum.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá mexíkóskum yfirvöldum. Þar kemur fram að frá því að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í nóvember og þar til í mars sóttu 5.421 um hæli í Mexíkó en á sama tíma ári áður voru umsóknirnar 2.148. Sérfræðingar segja að það sé þó enn of snemmt að segja með fullri vissu að þessi mikla aukning sé tilkomin vegna kjörs Trump í forsetaembættið.
Cinthia Perez, forstjóri mexíkósku útlendingastofnunarinnar, segir að upplifun fólks á pólitískum breytingum hafi örugglega áhrif á hvar það sæki um hæli. Jótlandspósturinn segir að samkvæmt því sem Perez segi þá eigi nú að reyna að komast til botns í af hverju svo margir sækja nú um hæli í Mexíkó. Meðal annars á að spyrja hælisleitendur beint hvort kjör Trump hafi haft áhrif á ákvörðun þeirra.
Tölur frá bandaríska innanríkisráðuneytinu sýna að mun færri ólöglegir innflytjendur hafa verið stöðvaðir á landamærunum við Mexíkó eftir að Trump var kjörinn forseti. Í mars voru rétt rúmlega 1.000 stöðvaðir en það er 93 prósent fækkun ef borið er saman við desember.
Stærsti hluti þeirra sem sækja um hæli í Mexíkó eru frá Hondúras, El Salvador og Gvatemala en í þessum ríkjum ríkir nánast óöld með tilheyrandi ofbeldi og óróleika í samfélaginu.