Ísland er í 25. sæti af 136 löndum í ár yfir yfir samkeppnishæfustu ferðamannastaðina í heiminum en landið lækkar um sjö sæti frá 2015. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu World Economic Forum. Líkt og á árinu 2015 eru Spánn, Frakkland og Þýskaland í þrem efstu sætum listans.
Samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka fela snúa styrkleikar landsins hvað ferðamannaþjónustu varðar að mannauð og vinnumarkað, hvað landið er opið og vel tengt flugumferð. Er landið í öðru sæti listans yfir fjölda brottfara flugvéla í hlutfalli af íbúafjölda. Einnig eru öryggi og hreinlæti meðal kosta landsins og er Ísland í þriðja sæti hvað öryggi varðar. Innviðir ferðaþjónustunnar eru góðir og landið lendir þar í 13. sæti en Ísland er í 2. sæti varðandi fjölda hótelherbergja á íbúa.
Samkvæmt Hagstofunni voru gstinætur á hótelum og gistiheimilum voru tæplega 5,2 milljónir á síðasta ári og fjölgaði um 26% frá fyrra ári. Hefur uppbygging gististað á undanförnum árum ekki náð að fylgja eftir mikilli fjölgun ferðamanna og hefur mikil eftirspurn eftir gistirými orðið til þess að stóraukið framboð hefur myndast á vefsíðum á borð við Airbnb. Erfitt sé hing vegar að meta nákvæmlega framboð og nýtingu þess gistirýmis sem fellur fyrir utan gistináttatalningu Hagstofunnar
Náttúran styrkleiki landsins
Það kemur ekki á óvart að náttúran sé styrkleiki landsins sem ferðamannastaðar en þar lendir landið í 4. sæti. Einnig er landið í fjórða sæti hvað varðar hversu virk markaðssetning hefur verið í því að fá ferðamenn til landsins. Á móti dregur skortur á menningarlegri afþreyingu nokkuð úr samkeppnishæfni landsins í ferðaþjónustu samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar.
Hátt verðlag dregur úr samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar hér á landi en þar lendir landið í sæti 132. sæti sem er fimmta neðsta sætið. Einnig skýrir það að hluta af hverju landið er að lækka hvað samkeppnishæfni varðar frá 2015 en landið var í 128. sæti árið 2015. Af löndum sem eru fyrir neðan Ísland á listanum eru t.d. Bretland og Sviss. Er Ísland orðið dýrast Norðurlandanna heim að sækja en á listanum 2015 voru bæði Noregur og Danmörk dýrari en Ísland.
Vanþróuð ríki eru efst á þessum lista yfir verðlag og þau þróaðri raða sér neðar. Samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka er það í raun eðlilegt og þannig kostur fyrir íbúa landsins að vera ekki ofar á listanum. Þannig eru þau samkeppnishæfustu hvað verðlag varðar t.d. Íran, Egyptaland, Malasía, Alsír og Indónesía. Landsframleiðsla á mann var t.d. tæplega 5 sinnum hærri hér á landi en í Egyptalandi á árinu 2015 leiðrétt fyrir ólíkum kaupmætti í löndunum tveim.
Heildarfjöldi erlendra ferðamanna hér á landi var tæplega 1,3 milljónir árið 2015, 1,8 milljón í fyrra og stefnir í að vera samkvæmt okkar spá um 2,3 milljónir í ár. Vöxturinn var 40% í fyrra en við reiknum með að það dragi úr honum í ár og að hann verði engu að síður 30%. Vöxturinn er því enn hraður enda samkeppnishæfni landsins er varðar ferðaþjónustu sterk þrátt fyrir að hún sé að versna.