Már Guðmundsson seðlabankastjóri var gestur Björns Inga Hrafnssonar í þættinum Eyjan á ÍNN í kvöld. Þar fóru þeir yfir efnahagsmálin sem ávallt eru á milli tannana á fólki, einkum og sér í lagi nú þegar fjármagnshöft hafa verið afnumin. Már segir að viðbrögðin við þeim áfanga hafi verið góð og ,,ekki hafa haft stórkostleg áhrif á gengið“.
Hann segir það ekki víst að sú lækkun sem orðið hafi á krónunni undanfarið sé eingöngu vegna losunar hafta. Væntingar um aðgerðir til veikingar gengis krónunnar hafi líka spilað þar hlutverk.
,,Tiltrú á Ísland hefur stóraukist“
Fjárfestar renni hýru auga hingað. Hagvöxturinn sé í hæstu hæðum og staðan góð. Skuldastaðan sé þannig að eignir Íslendinga erlendis séu meiri en erlendar skuldir. Lágir vextir víðast hvar annars staðar geri það að verkum að fjármagn streymi hingað.
Þeir Már og Björn ræða auk gagnrýni sem heyrst hefur um afnám haftanna ásamt ferðamannastrauminum og ýmsu sem snertir efnahagslífið hér á landi.
Hér má sjá þáttinn í heild sinni
Eyjan_23MAR17 from inntv on Vimeo.