Líklegt er að krónan muni styrkjast á þessu ári og að stýrivextir verði lækkaðir um 0,25 prósentustig í maí og aftur í júní. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningadeildar Íslandsbanka. Í morgun tilkynnti Seðlabankinn að peningastefnunefnd hefði ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5%. Enn væri óvissa um efnahagsleg áhrif af afnámi fjármagnshafta og sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á kynningarfundi í morgun að það sé hans mat að ekki sé augljóst að krónan komi til með að styrkjast á næstunni.
Bætti hann við að eftir því sem óvissan tengd efnahagslífinu minnkar og verðbólguvæntingar festast í sessi haldi jafnvægisnafn og -raunvextir áfram að síga niður. Þá sagði hann að peningastefnan hefði öðlast trúverðugleika sem sést m.a. á því að undanfarið þegar gengi krónunnar hefur sveiflast umtalsvert þá hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lítið breyst. Nú sé ljóst að markaðurinn sé að leita að nýju jafnvægi í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta. Þrátt fyrir að Seðlabankinn muni draga úr skammtímasveiflum og stöðva spírala sem kunna að myndast megi markaðurinn ekki líta svo á að 100% trygging sé fyrir því að Seðlabankinn grípi inn í allar aðstæður.
Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga muni hjaðna eftir því sem líður á árið, ekki síst vegna líklegrar styrkingar krónunnar. Ef verðbólgan minnkar á komandi mánuðum samhliða styrkingar krónunnar telur greiningadeildin að rök fyrir því hjá peningastefnunefndinni að lækka stýrivexti svo peningalegt aðhald aukist ekki frekar með hækkandi raunvöxtum. Er því spáð að stýrivextirnir verði lækkaðir um 0,25 prósentur á vaxtaákvörðunardeginum 17. maí, og aftur þann 14. júní næstkomandi.