fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Eyjan

Kosningarnar í Katalóníu leysa engan vanda

Egill Helgason
Föstudaginn 22. desember 2017 13:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kosningarnar í Katalóníu leysa engan vanda – þvert á móti, þær magna upp öfgarnar og framlengja deilur um sjálfstæði um ófyrirsjáanlegan tíma. Flokkar aðskilnaðarsinna vinna nauman meirihluta á þingi  70 af 135.  Að baki þeim er minnihluti kjósenda, en aðskilnaðarflokkarnir njóta þess að fylgi þeirra er meira í dreifðum byggðum og því nýtast atkvæðin þeim betur.

Stærsti flokkurinn á þingi Katalóníu verður samt Ciudadamos, en það er evrópusinnaður mið-hægriflokkur, ekki ósvipaður Viðreisn á Íslandi. Ciudadamos fékk fjórðung atkvæða, en flokkurinn er algjörlega á móti sjálfstæði Katalóníu. Flokkur fólksins, sem Manuel Rajoy, forsætisráðherra Spánar, tilheyrir beið afhroð.

Kosningarnar hafa semsagt ekki leyst neitt. Þær eru áfall fyrir Rajoy og harðlínustefnu hans. En yfirlýsingar Carles Puigdemonts og fleiri leiðtoga aðskilnaðarsinna um að þeir hafi unnið stóran sigur hafa holan hljóm. Því fer fjarri að umboð þeirra sé sérlega skýrt, en vandinn er sá að hætt er við að flokkar ofstækisfyllstu aðskilnaðarsinnanna verði í oddaaðstöðu.

Skotgrafirnar hafa einfaldlega dýpkað. Innan Evrópusambandsins er lítill stuðningur við sjálfstæði Katalóníu, fyrirtæki kæra sig almennt ekki um aðskilnað, en það mun líta afar illa út ef Rajoy heldur áfram að beita ofbeldi og fangelsunum gegn aðskilnaðarsinnum sem túlka úrslitin eins og þau hafi unnið stórsigur.

 

Þeir sem fylgjast með aðgerðum katalónskra sjálfstæðissinna taka eftir því hversu fólk er vel til fara á fundum þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Ég elska svona hræsni“

„Ég elska svona hræsni“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hjördís María skrifar: Fasteignafélög og leigumarkaður

Hjördís María skrifar: Fasteignafélög og leigumarkaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Vinstri meirihluti í burðarliðnum – Einar plottaði yfir sig en Viðreisn hélt kúlinu

Orðið á götunni: Vinstri meirihluti í burðarliðnum – Einar plottaði yfir sig en Viðreisn hélt kúlinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús