fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Eyjan

New York Times 1924: „Hitler taminn í fangelsi“ -„ Búist við að hann dragi sig í hlé“

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 21. desember 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frétt The New York Times árið 1924

Það getur stundum komið blaðamönnum í koll við fréttaskrif að búa til krassandi fyrirsagnir sem máske hljóma vel, en eru ekki endilega sannleikanum samkvæmar. Hið sama gildir um tilhneigingu sumra, að gera ráð fyrir einhverri útkomu, sama hversu rökrétt sú ákvörðun virðist á þeim tíma. Þess vegna hefur það löngum verið talin reglan að blaða- og fréttamenn eigi að skilja persónulegar skoðanir sínar utan við fréttirnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hitler dregur sig í hlé
Fréttaritari The New York Times í Berlín hefur mögulega séð eftir frétt sinni um lausn Hitlers úr fangelsi árið 1924, þó eftirsjáin hafi mögulega ekki komið fyrr en nokkrum árum síðar.  Úrklippa með fréttinni hefur nú þotið um iður internetsins, en í niðurlagi hennar spáir blaðamaðurinn allt annarri útkomu en raunin varð, enda hefur mannkyn vart verið samt síðan.

 

 

 

Í fréttinni, sem ber fyrirsögnina „Hitler taminn í fangelsinu“, segir að Hitler hafi verið látinn laus úr fangelsi, á skilorði. Í lokin er svo sagt: „Talið er að hann  muni draga sig í hlé og snúa til Austurríkis, fæðingarstaðar hans.“
Svo fór nú aldeilis ekki. Hitler gaf út Mein Kampf árið eftir, en hann samdi hana að hluta til í fangelsinu og framhaldið þekkja allir.

 

Hér er bein þýðing á fréttinni:

Hitler taminn í fangelsinu
Sleppt á skilorði, Búist við að hann snúi til Austurríkis
Berlín, 20. desember- Adolf Hitler, eitt sinn hálfguð afturhaldssamra öfgamanna, var sleppt úr fangelsi gegn skilorði úr Landsbergvirkinu í Bæjaralandi í dag og hélt samstundis til München í bifreið. Hann virtist mun sorgmæddari og vitrari maður í dag en síðasta sumar, þegar hann, ásamt Ludendorff og öðrum róttækum öfgamönnum, kom fyrir rétt í München , hvar hann var ákærður fyrir valdaránstilraun. Hegðun hans í fangelsinu sannfærði stjórnvöld um, að hann beri ekki lengur að óttast og að hið sama gildi um hin pólitísku samtök hans, Völkischer. Búist er við að hann muni draga sig í hlé og snúa aftur til Austurríkis, fæðingarstaðar hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn og aftur um bókun 35 og forgang EES-reglna

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn og aftur um bókun 35 og forgang EES-reglna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna: Innganga í ESB ógnar ekki fullveldi Íslands – sjálfstæðið þó sterkara utan sambandsins

Áslaug Arna: Innganga í ESB ógnar ekki fullveldi Íslands – sjálfstæðið þó sterkara utan sambandsins