fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Eyjan

Samkomulag um aðhald í fiskveiðum í Norður- Íshafi

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 1. desember 2017 15:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkomulag hefur náðst á milli Bandaríkjanna, Danmerkur f.h. Færeyja og Grænlands, Íslands, Japan, Kanada, Kína, Noregs, Rússlands, Suður-Kóreu og Evrópusambandsins um drög að samningi sem kemur í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar í Norður-Íshafi ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast. Samkomulagið varðar stjórnun fiskveiða, samstarf um vísindarannsóknir og vöktun fiskistofna og lífríkis í Norður-Íshafi og náðist á fundi sem haldinn var í Washington, dagana 28. – 30. nóvember.

„Þetta er afar mikilvægt samkomulag þar sem tekist hefur að fá þjóðirnar sem að honum standa til að sýna ábyrgð og framsýni varðandi þær miklu breytingar sem fyrirsjáanlegar eru í norðurskautinu vegna loftslagsbreytinga. Samkomulagið tónar vel við nýjan stjórnarsáttmála þar sem áhersla er lögð á umhverfisvernd og sjálfbærni á norðurslóðum,“

sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.

„Það er ánægjulegt að samkomulag hefur náðst um þetta viðkvæma hafsvæði með þeim tíu ríkjum sem eiga hvað mestra hagsmuna að gæta af samstarfi í vísindarannsóknum og sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurslóðum.“

sagði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Samningurinn nær til úthafsins og felur í sér að aðilar hans munu skuldbinda sig til að heimila ekki veiðar á samningssvæðinu fyrr en vísindarannsóknir hafa lagt grunn að sjálfbærum fiskveiðum. Einnig eru ákvæði um vísindasamstarf og ákvarðanatöku um að koma á fót fiskveiðistjórnunarstofnun þegar slíkt er tímabært. Ekki er fyrirsjáanlegt að mögulegt verði að stunda fiskveiðar á samningssvæðinu á allra næstu árum. Á grundvelli varúðarnálgunar ákváðu aðilarnir hins vegar að stofna til samnings nú til að fyrirbyggja stjórnlausar veiðar á þessu viðkæma hafsvæði á komandi árum þar sem hraðar breytingar eiga sér nú stað vegna hlýnunar og bráðnunar íss. Að þessu leyti er um að ræða tímamótasamning. Með aðild Íslands að þessum samningi mun aðkoma Íslands að ákvarðanatöku og rannsóknasamstarfi á þessu mikilvæga hafsvæði verða tryggð.

Sendinefnd Íslands skipuðu Jóhann Sigurjónsson, formaður, frá utanríkisráðuneytinu, Stefán Ásmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Matthías G. Pálsson frá utanríkisráðuneytinu og Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir úr sendiráði Íslands í Washington.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast

Orðið á götunni: Fundaóður flokkur undirbýr landsfund – áhlaup Áslaugar í Reykjavík misheppnast
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn og aftur um bókun 35 og forgang EES-reglna

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn og aftur um bókun 35 og forgang EES-reglna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús

Enginn meirihluti í borginni og Sjálfstæðisflokkur lætur til skarar skríða – Vilja selja Höfða, Ljósleiðarann og bílastæðahús
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna: Innganga í ESB ógnar ekki fullveldi Íslands – sjálfstæðið þó sterkara utan sambandsins

Áslaug Arna: Innganga í ESB ógnar ekki fullveldi Íslands – sjálfstæðið þó sterkara utan sambandsins