Donald Trump undirritar yfirlýsingu þess efnis að Bandaríkin viðurkenni Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Þetta er fráleitur gjörningur. Bak við hann er jólatré og furðufuglinn Mike Pence varaforseti.
Eftir ræðuna hefst mikil umræða á netinu um hvort Trump sé með falskar tennur. Það er eins og eitthvað losni í munninum á honum í ræðunni og orð hans verða ógreinileg. Það er reyndar sagt að þetta hafi komið fyrir áður.
Bandaríkjamenn eru mjög viðkvæmir fyrir lélegri tannheilsu. Hvergi í heiminum þykir jafn mikilvægt að hafa heilar og helst skínandi hvítar tennur. Hið vandaða blað Daily Mail birtir úttekt á þessu. Það þarf ekki að taka fram að núverandi forseti Bandaríkjanna er með hégómlegustu mönnum.