fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Mikilvæg frásögn Steinunnar Valdísar á ofbeldinu sem hún varð fyrir

Egill Helgason
Sunnudaginn 3. desember 2017 14:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og alþingismaður, átti feiknarlega sterka innkomu í Silfrið hjá Fanneyju Birnu í dag. Steinunn lýsti ofsóknunum sem hún varð fyrir eftir hrun þegar hópur fólks stóð kvöld eftir kvöld utan við heimili hennar, meðal annars karlar í kraftgöllum. Þetta var gróft og óhugnanlegt einelti gagnvart henni og fjölskyldu hennar.

Þetta var í upplausnarástandinu eftir hrun. Stundum lá við múgræði, að reitt fólk ætlaði að taka lögin í sínar eigin hendur. Í þessu tilviki snerist málið um stjórnmálamenn sem höfðu þegið fé frá stórfyrirtækjum í kosningabaráttu. Þar voru ýmsir nefndir til sögunnar, eins og sjá má í fréttum frá þessum tíma, auk Steinunnar Guðlaugur Þór Þórðarsson, Helgi Hjörvar, Björn Ingi Hrafnsson og fleiri.

Auðvitað voru þessar styrkveitingar óeðlilegar – og síðar hafa verið sett lög sem gera þær óheimilar. En svona gerðust kaupin á eyrinni fyrir hrun.

En ofsinn beindist gegn Steinunni Valdísi. Hún gerði samviskusamlega grein fyrir styrkjunum í fjölmiðlum. En það var hún sem var tekin fyrir. Vaktin var staðin utan við heimili hennar, ekki hinna. Maður veltir fyrir sér hvaða skýringar eru á þessu. Þótti hún liggja betur við höggi en hinir. Eða var það vegna þess að hún er kona?

Þetta endaði með því að Steinunn Valdís sagði af sér þingmennsku vorið 2010, þrýstingurinn á hana innan úr flokknum varð líka mikill og flokksfélagar hennar skoruðu á hana að hætta. Hún hvarf úr pólitík. En aðrir sem voru í svipaðri stöðu og hún hörkuðu af sér og störfuðu áfram. Frekar karlarnir en konurnar – því Þorgerður Katrín hvarf líka úr varaformannsstóli hjá Sjálfstæðisflokknum.

Frásögn Steinunnar í Silfrinu í morgun var mjög einlæg og mikilvægt að hún skuli birtast. Hana má sjá hér á vef RÚV. Og maður spyr hvað þeim hafi gengið til sem réðust á hana með þessum hætti og hvernig þeim líði með gjörðir sínar nú?

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur