Maður finnur fyrir mikilli taugaveiklun vegna stjórnarmyndunar. Blammeringar ganga á víxl vegna hinnar misheppnuðu til raunar til að mynda vinstri stjórn, beinast reyndar aðallega að Framsóknarflokknum. Á vinstri vægnum ríkir taugaveiklun vegna þess að VG fer hugsanlega í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. VG vill hafa Samfylkinguna með í slíkri stjórn – kærir sig ekki um að hún leiki lausum hala utan stjórnar og hirði vinstra fylgið. Fáum virðist hugnast hægri stjórn með Miðflokknum og Flokki fólksins. Það er í gangi ákveðin refskák – og spurning hver nær að taka frumkvæðið.
En kannski liggur ekki svo mikið á. Það er engin sérstök vá fyrir dyrum í þjóðarbúskapnum. Það er nægur tími til að vanda sig við myndun ríkisstjórnar. Í Þýskalandi var kosið 24. september. Þar er ekki ennþá búið að mynda ríkisstjórn. Samningaviðræður standa yfir milli Kristilegra demókrata, flokks Angelu Merkel, Frjálsra demókrata og Græningja.
Líklegt þykir að stjórnin verði mynduð. En þýsku flokkarnir taka tímann sinn í að setja saman vandaða málefnaskrá og verkáætlun eins og sjá má á þessum vef þar sem er að finna yfirlit yfir hvernig flokkunum verður ágengt, einkum í umhverfismálum. Síðustu fréttir herma að Græningjar hafi verið að bakka nokkuð með kröfur sínar á því sviði.
Angela Merkel og Katrin Göring-Eckardt, foringi þýskra Græningja. Stjórnarmyndunarviðræðurnar taka sinn tíma.