fbpx
Miðvikudagur 09.apríl 2025
Eyjan

Demókratar sigra í ríkisstjórakosningum – Trump gagnrýnir samflokksmann sem tapaði

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 8. nóvember 2017 15:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Tvennar ríkisstjórakosningar voru haldnar í Bandaríkjunum í gær og sigruðu demókratar þær báðar. Annarsvegar var það Ralph Northam sem sigraði repúblikanann Ed Gillespie í Virginíu og hinsvegar Ed Murphy sem sigraði repúblikanann Kim Guadagno í New Jersey. Voru þetta fyrstu ríkisstjórakosningarnar í Bandaríkjunum síðan Donald Trump var kosinn forseti fyrir ári síðan.

Þá var sitjandi borgarstjóri New York,  demókratinn Bill de Blasio, endurkjörinn með um 65% atkvæða, en mótframbjóðandi hans, repúblikaninn Nicole Malliotakis, fékk um 29% atkvæða, sem gerir sigurinn einn þann stærsta í borginni í 32 ár.

Úrslitin þykja vera nokkuð högg fyrir Trump forseta, sem er þessa stundina í opinberri heimsókn í Kína, sem er hluti af Asíuför hans. Hann tjáði sig þó aðeins með einu tísti um málið á Twitter, hvar hann gagnrýndi Ed Gillespie fyrir að hafa ekki staðið fyrir sömu gildum og Trump stendur fyrir.

Þykja þessi úrslit benda til þess að úrslit næstu þingkosninga gætu sveiflast demókrötum í hag, en repúblikanar eru í meirihluta bæði í öldunga- og fulltrúadeild þingsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hagfræðingur Arion banka: Tollarnir hafa neikvæð áhrif á heimshagkerfið og hækka vöruverð í Bandaríkjunum

Hagfræðingur Arion banka: Tollarnir hafa neikvæð áhrif á heimshagkerfið og hækka vöruverð í Bandaríkjunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Logi Einarsson: Munurinn á okkur og síðustu ríkisstjórn er að við erum samstiga og komum hlutunum í verk

Logi Einarsson: Munurinn á okkur og síðustu ríkisstjórn er að við erum samstiga og komum hlutunum í verk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Uppnám í Hádegismóum

Orðið á götunni: Uppnám í Hádegismóum