Samkvæmt frétttum er búið að slíta stjórnarmyndunarviðræðum að frumkvæði Framsóknarflokksins. Kannski var ekki von á öðru, meirihluti vinstri stjórnar hefði verið afar tæpur. Menn verða svo að svara því hversu mikil heilindi voru í viðræðum flokksformannanna og pítsuveislunni í Syðra-Langholti.
Vildu menn í alvörunni mynda stjórn eða var þetta leiksýning til að geta síðar farið með stjórnarmyndunarviðræður allt annað?
Það er ekkert ólíklegt að næstu daga muni ganga á með brigslum um óheilindi.
Katrín Jakobsdóttir hlýtur þá að skila stjórnarmyndunarumboði sínu í dag. Líklegast er þá að Bjarni Benediktsson fái umboðið – þá til að mynda hægri stjórn?
Reyndar er víst að draumaríkisstjórn bæði Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Inga Jónssonar er stjórn með Vinstri grænum. Það er ekki enn kominn tími til að reyna að mynda hana, en það gæti gerst þegar nær dregur jólum, þegar ef til vill hefur mistekist að mynda stjórnina til hægri.