Formlegar stjórnarmyndunarviðræður Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru að hefjast. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, segist verða ánægður ef þær taka viku.
Í Þýskalandi eru Kristilegir, Frjálslyndir og Græningjar enn að reyna að koma saman málefnasamingi þegar næstum tveir mánuðir eru liðnir frá kosningum.
Það er ekki hundrað í hættunni þótt menn taki tímann sinn hér á Íslandi. Það þarf ekki alltaf að fara eftir hraða samskiptamiðlanna.
Þetta gerist án þess að neinn sé með umboð frá forseta Íslands til stjórnarmyndunar. Katrín Jakobsdóttir fékk umboðið í fáa daga til að mynda ríkisstjórn, skilaði því svo aftur. Nú virðist gert ráð fyrir að hún verði forsætisráðherra, en þarna er enginn atbeini forsetans. Guðni Th. segir að hann vænti þess að fá fréttir fyrir helgi. Katrín sjálf segir að sér finnist ekki skipta máli hver sé með umboðið.
Staðreyndin er auðvitað sú að stjórnir hafa oftast verið myndaðar á Íslandi án þess að til kæmi umboð frá forsetanum. Það er í raun nóg að mæta á Bessastaði með samþykki meirihluta þingmanna og þá getur forseti ekki sagt annað en já og amen.
Margir gefa sér að þessi stjórn hljóti að verða óvinsæl og geti jafnvel orðið banabiti Vinstri grænna. Það myndi þó auðvitað að talsverðu leyti ráðast af því hverju hún vill koma í verk og hvernig henni tekst það. Það er ekki skortur á peningum á Íslandi um þessar mundir og nú er spurning hvernig þeim verður útdeilt. Það bíða mörg verkefni við endurreisn heilbrigðiskerfisins og velferðarkerfisins og uppbyggingu innviða. Það væri heldur skítt fyrir vinstri menn að sitja hjá meðan þetta fer fram.
Í því sambandi má minna á áherslur Sjálfstæðisflokksins frá því fyrir kosningar, en þar syndi flokkurinn aldeilis vinstri vangann. Það var reyndar talað um að lækka skatta, en líka um 100 milljarða í innviðauppbyggingu, átak í geðheilbrigðismálum, stórfellda hækkun frítekjumarks, stuðning við ungt fólk á húsnæðismarkaði, hækkaðar greiðslur í fæðingarorlofi, heilbrigðisþjónustu óháða efnahag, náttúruvernd og metnaðarfull markmið í loftslagsmálum.
Máski halda menn því fram að ekkert sé að marka kosningaplögg eins og þetta – en Vinstri græn hljóta að hafa lesið það. Hér eru til samanburðar kosningaáherslur þeirra.