Það náttúrlega situr starfsstjórn á Íslandi, en ríkisstjórn telst það nú samt vera. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fer til Bretlands á fund hjá hugveitunni Institute for Free Trade.
Hugveita þessi er að nokkru leyti eins og pólitískur stökkpallur fyrir Boris Johnson – það má sjá að hann er ekki búinn að gefa upp á bátinn að verða formaður Íhaldsflokksins – og hins vegar er hún vettvangur fyrir þá sem vilja hart Brexit.
Helsti forystumaðurinn er Daniel Hannan, hann er þingmaður á Evrópuþinginu, harður andstæðingur Evrópusambandsins og einn helsti hugmyndafræðingurinn á bak við Brexit. Hannan þykir mjög langt til hægri í stjórnmálum, en hann var í fréttum fyrir nokkru vegna þess að hann hafði eytt af Twitter-reikningi sínum harðorðum færslum um Donald Trump. En það var áður en varð útlit fyrir að Trump yrði forseti. Þetta er úr tímaritinu Private Eye.
Hannan hefur oft komið til Íslands og er persónulegur vinur Guðlaugs Þórs.
Í þessari frétt í Guardian má lesa um Boris Johnson og stofnun þess. Þar er það túlkað svo að Johnson sé augljóslega að storka Theresu May með því að bjóða þessum hópi inn í sjálft utanríkisráðuneytið. Það er svo haft eftir Hannan að hann sé andsnúinn varfærinni nálgun forsætisráðherrans, en hvetji til þess að Bretar fylgi fordæmi Singapore varðandi markaðsfrelsi.
Það er dálítið skondið að fundurinn var haldinn í rými sem kallast Colonial Map Room.
Þversögnin í þessu er sú að Íslendingar eru aðilar að EES samningnum. Í Bretlandi er hann reyndar oftast kallaður „norska módelið“, enda ljóst að Íslendingar eru í eftirdragi Norðmanna í EES. Maður heyrir það nánast aldrei lagt til að Íslendingar segi sig úr EES samningnum.
Fyrir hina hörðu Brexit-menn sem Guðlaugur Þór utanríkisráðherra átti stund með í Lundúnum væri innganga Breta í EES eða eitthvað af því taginu hins vegar algjör svik.
Hér má heyra ræðu Guðlaugs Þórs á fundi Institute of Free Trade.