Erna Solberg formaður Hægri flokksins og forsætisráðherra Noregs síðastliðin fjögur ár verður áfram við stjórnvölinn. Ríkisstjórnarsamstarf Hægri flokksins við Framfaraflokkinn, með stuðningi Kristilega þjóðarflokksins og Frjálsynda flokksins Vinstri hélt velli í norsku þingkosningunum í gær. Þetta kosningabandalag hlaut 89 þingsæti og hefur þannig fjögur sæti umfram þau 85 sæti sem þarf til að mynda meirihluta á norska Stórþinginu.
Stjórnarandstaðan, það eru vinstri flokkarnir og Miðflokkurinn hlutu alls 80 þingsæti. Þetta eru auk Miðflokksins, – Verkamannaflokkur jafnaðarmanna, Sósíalíski vinstriflokkurinn, Umhverfisflokkur Græningja og kommúnistaflokkurinn Rautt.
Þrátt fyrir að Miðflokknum gengi afar vel í kosningunum, þar sem hann jók fylgi sitt um nálega helming frá fyrri kosningum og fengi 10,3% atkvæða, þá dugar það hvergi til að fella hægri stjórnina. Megin ástæðan er sú að vinstri flokkunum mistókst að svara væntingum. Verkamannaflokkurinn sem hefur verið langstærsti flokkur um áratuga skeið fékk aðeins 27,4% og tapaði 3,4% frá kosningunum 2013. Aðeins einu sinni frá 1924 hefur flokkurinn fengið minna fylgi í þingkosningum. Það var 2001.
Norski Verkamannaflokkurinn er eftir gærdaginn aðeins rétt stærri en Hægri flokkur Ernu Solberg forsætisráðherra sem hlaut 25,1% og tapaði 1,7% frá síðustu kosningum. Ljóst er að Verkamannaflokksins bíða erfiðir tímar, jafnvel með innra uppgjöri, þar sem flokknum undir forystu Jonasar Gahr Störe klúðraði illilega tækifærum til að sækja að sitjandi hægristjórn.
Hinir vinstri flokkarnir fengu ekki það fylgi sem margir höfðu vonir um, þó að þeir bættu sig.
Sósíalíski vinstri flokkurinn hlaut 6% og jók fylgið um 1,9%. Kommúnistaflokkurinn Rautt fékk 2,4% (aukning um 1,3%) og þingmann í fyrsta sinn í sögu sinni, en var fjarri því að komast í 4% lágmarkið sem hefði veitt honum hlutdeild í uppbótarþingsætum. Þannig fékk þessi flokkur aðeins eitt þingsæti en hefði getað náð um sjö sætum ef hann hefði fengið uppbótarmenn. Svipað gildir um Umverfisflokk Græningja. Hann fékk aðeins 3,2% og einn þingmann en komst ekki í uppbótarþingsætin.
Miðflokkurinn vann hins vegar mjög góðan sigur. Hann fékk 10,3% og jók fylgið um 4,8% frá 2013. Þessi flokkur sem telst systurflokkur Framsóknarflokksins á Íslandi hefur haft mjög ákveðna stefnu til varnar hinum dreifðu byggðum Noregs, auk þess sem hann hafnar ákveðið aðild að Evrópusambandinu. Margir Norðmenn telja að landsbyggðin hafi átt mjög í vök að verjast á síðasta kjörtímabili vegna ýmissa aðgerða hægri stjórnarinnar. Þetta hefur skapað mikla óánægju sem skilaði Miðflokknum ótrúlegu fylgi í gær í sumum byggðum Noregs.
Hægri flokkurinn og Framfaraflokkurinn sem hafa setið í ríkisstjórn síðustu fjögur árin unnu báðir varnarsigra. Hægri flokkurinn missti sem fyrr greindi 1,7% og Framfaraflokkurinn tapaði 1,1%. Það hlýtur að teljast viðunandi og ríkisstjórnin hélt velli. Báðum litlu flokkunum sem styðja hana og verja falli á norska Stórþinginu, það er Kristilega þjóðarflokknum og Frjálslynda flokknum Vinstri, tókst að komast yfir 4% múrinn og fá jöfnunarsæti. Vinstri fékk 4,3% og Kristilegir 4,2%. Hver flokkur um sig hlaut átta þingsæti.
Sigurför kvenna
Sylvi Listhaug ráðherra innflytjendamála í hægri stjórninni hefur verið mjög umdeild sem stjórnmálamaður. Vinstri menn réðust óspart að henni í kosningabaráttunni og gagnrýndu hana harðlega. Listhaug var nú í framboði til þings í heimafylki sínu Mæri og Raumsdal. Þar vann hún stórsigur. Flokkur hennar Framfaraflokkurinn haut þar 22,4 og bætti sig um 2,4%. Listhaug er nú orðin þingmaður í fyrsta sinn á stjórnmálaferlinum. Framfaraflokkurinn er nú hvergi sterkari í Noregi en einmitt í fylki Sylvi.
Sé litið til annars en flokkadrátta þá vekur athygli að konur festa sig mjög í sessi í forystu norskra stjórnmála. Alls náðu 70 konur kjöri í gær sem gerir hlutfall þeirra á Stórþinginu 41,4%. Þær hafa aldrei verið fleiri þar. Síðan er forsætisráðherrann kona og formenn þriggja af fjórum stjórnarflokkum verða væntanlega konur. Það eru Erna Solberg forsætisráðherra, Siv Jensen fjármálaráðherra og formaður Framfaraflokksins og Trine Skei Grande formaður Frjálslynda flokksins Vinstri.