Stjórnarflokkarnir í Noregi virðast samkvæmt spá vinna 89 þingsæti á norska Stórþinginu. Núverandi stjórnarandstaða fær 80 sæti. Ríkisstjórn Ernu Solberg heldur þannig velli.
Norðmenn gengu til Stórþingskosninga í dag. Síðustu kjörstöðum var lokað núna klukkan 19:00 að íslenskum tíma en þá var klukkan 21:00 í Noreg.
Norska ríkissjónvarpið, NRK, birti fyrstu tölur og spá um úrslit strax eftir að kjörstaðir lokuðu. Spáin er reiknuð út frá þeim atkvæðum sem þegar voru talin þegar kjörstaðir lokuðu. Það eru utankjörfundaratkvæði. Þau hafa þegar verið talin. Við þetta bætast svo atkvæði frá kjörstöðum sem lokuðu fyrir 21:00 og búið var að telja þá. Fjölmargir kjósendur kusu utan kjörfundar í ár, – rúmlega ein milljón manns eða 27,3% þeirra Norðmanna sem hafa kosningarétt. Spáin um úrslit byggir á þessum atkvæðum, er reiknuð út eftir líkani af kjörstjórn (Valgdirektoratet) og færð NRK til birtingar.
Þetta eru úrslit kosningaspánnar í prósentum (þingsæti innan sviga):
Framfaraflokkurinn (Fremskrittspartiet): 15,7 (29)
Frjálslyndi flokkurinn Vinstri (Venstre): 4 (7) – 4
Hægri flokkurinn (Höyre): 26,2 (47)
Kristilegi þjóðarflokkurinn (Kristelig folkeparti): 4 (3)
Lýðræðissinnar (Demokratene):
Miðflokkurinn (Senterpartiet): 9,4 (19)
Rautt (Rödt): 2,6 (1)
Sósíalíski vinstriflokkurinn (Sosialistisk venstreparti): 5,7 (11)
Verkamannaflokkurinn (Arbeiderpartiet): 27,5 (50)
Umhverfisflokkur Græningja (Miljöpartiet Grönt): 3,3 (1)
Barist er um 169 sæti á Stórþinginu. Stjórn með meirihluta þingsæta á bak við sig þarf þannig að vinna 85 sæti. Núverandi stjórn er mynduð af Hægri flokknum, Framfaraflokknum, Kristilega þjóðarflokknum og Frjálslynda flokknum Vinstri. Þeir halda sem sagt meirihluta sínum að því gefnu að fyrsta spá reynist rétt.